102/11RÚV - INNLENT13:28
Lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti
fyrr í þessum mánuði að spara í rekstri
bæjarins vegna slakrar afkomu á fyrri
hluta árs. Meðal annars var samþykkt að
lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra.
Einnig á að rýna rekstur og endurskoða
opnunartíma einstakra stofnana, svo sem
bókasafns og sundlaugar.Morgunblaðið
greinir frá þessu í dag og ræðir við Þór
Sigurgeirsson bæjarstjóra. Laun hans
lækka um 200 þúsund krónur á mánuði.
Hann var með 2,085 milljónir í
mánaðarlaun samkvæmt yfirliti RÚV um
laun bæjarstjóra. Haft er eftir Þór að
verðbólga hafi valdið bænum
vandræðum.Þór Sigurgeirsson
bæjarstjóri.RÚV / Ragnar Visage

Birt: 19.10.2026 08:10
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA