102/13RÚV - INNLENT13:27
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna
fokhættu

Gular viðvaranir vegna suðvestan
hvassviðris eru í gildi í nær öllum
landshlutum. Björgunarsveitir á
Ölfussvæðinu hafa sinnt þó nokkrum
útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns í
dag.Sinna þurfti ýmsum verkum en
björgunarsveitum bárust meðal annars
tilkynningar um fjúkandi eða lausar
þakplötur. Á Eyrarbakka þurfti að festa
þakplötur á hesthúsi niður, sem og
þakplötu á nýlegu íbúðarhúsi. Einn sem
hringdi á neyðarlínuna lá sjálfur á
þakplötu sem hafði losnað til þess að
forða því að hún ylli tjóni.Á bænum
Litla-Saurbæ var vörubíll með krana
fenginn til þess að styðja við og fergja
þak á gamalli hlöðu sem var við það að
fjúka. Fljótlega kom í ljós að byggingin
stæði ekki uppi mikið lengur og var þá
tekin ákvörðun með ábúanda að fella
húsið.Að loknum aðgerðum óku
björgunarsveitir um byggðarlögin til
eftirlits áður en þær héldu aftur í
bækistöðvar sínar.Gular veðurviðvaranir
er í gildi í nær öllum landshlutum.
Björgunarsveitir á Ölfussvæðinu hafa
sinnt þó nokkrum veðurtengdum útköllum í
dag.

Birt: 18.10.2026 21:01
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA