102/14RÚV - INNLENT13:28
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun

Ekki er sama eftirlit með börnum í
bráðavistun og öðrum börnum í
fósturkerfinu. Félag fósturforeldra
segir dæmi um að börn séu í mörg ár í
bráðavistun, þrátt fyrir að í
barnaverndarlögum segi að bráðavistun
megi vara í að hámarki þrjá mánuði.Börn
í bráðavistun eru yfirleitt í vistun á
heimilum sem hafa ekki leyfi Gæða- og
eftirlitsstofnunar velferðarmála.Af þeim
sökum er ekkert eftirlit og
fósturforeldrarnir njóta ekki sama
stuðnings og aðrir.Barnavernd á að sinna
eftirliti með börnum í fóstriSkýrsla
Gæða- og eftirlitsstofnunar
velferðarmála um fósturheimili kom út í
sumar.Úttektin sem skýrslan byggir á var
gerð eftir umfjöllun Kveiks um
Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að
drengir sem dvöldu þar voru beittir
ofbeldi af hálfu fósturforeldris.Meðal
þess sem kemur fram í skýrslunni er að
46% fósturheimila hafi ekki tilskilin
leyfi og að eftirlitsheimsóknum
barnaverndar sé ábótavant.Ekkert
eftirlit er með börnum í bráðavistun á
vegum barnaverndar. Félag fósturforeldra
segir dæmi um að börn hafi verið í
bráðavistun, sem á að vara í að hámarki
þrjá mánuði, í átta ár.Gripið er til
bráðavistunar þegar skyndilega þarf að
tryggja öryggi barns á meðan fundin er
framtíðarlausn, til dæmis við skyndilegt
andlát foreldra. Börn sem eru
bráðavistuð eru hluti af fósturkerfinu
og úrræðið á, samkvæmt 84. grein
barnaverndarlaga, að vera að hámarki í
þrjá mánuði.Félag fósturforeldra hefur
skilað inn athugasemdum við skýrsluna og
telur ljóst að börn séu í bráðavistun í
mörg ár og njóti ekki eftirlits
barnaverndar á þeim tíma. Hvað segja
lögin? Í barnaverndarlögum er gerð krafa
um að eftirlit á fósturheimili fari að
lágmarki fram tvisvar sinnum fyrsta árið
sem barn er í fóstri og a.m.k. einu
sinni á ári eftir það.Við yfirferð
upplýsinga frá barnavernd mátti sjá í
mörgum tilfellum veruleg frávik frá
lágmarkskröfu um fjölda
eftirlitsheimsókna og framkvæmd
þeirra.Af hverju er ekkert eftirlit með
bráðavistun?Eitt af hlutverkum
barnaverndar er að tryggja að þau sem fá
börn til sín í bráðavistun fái fræðslu
innan 7 daga um að nauðsynlegt sé að
sækja um leyfi til tímabundins eða
varanlegs fósturs.Í skýrslu Gæða- og
eftirlitsstofnunar velferðarmála kemur
fram að mjög víða sé misbrestur á að
barnaverndir sinni því hlutverki.Af þeim
sökum eru dæmi um að börn séu í
bráðavistun mun lengur en lög heimila.
Og þar sem ekki liggur fyrir tímabundið
eða varanlegt fóstur sinna barnaverndir
ekki eftirliti með börnunum og
heimilunum sem þau eru bráðavistuð
á.Guðlaugur Kristmundsson, formaður
Félags fósturforeldra, segir það ljóst
að börn í bráðavistun séu undanskilin
þessu eftirliti.,,Og þetta er eitthvað
sem þarf að laga og það þarf að fara að
halda betur utan um þessi börn því við
vitum ekki hversu mörg börn þetta
eru."Guðlaugur segir að ekki sé vitað um
fjölda barna í bráðavistun því
barnaverndir halda ekki utan um fjölda
þeirra sem hafa börn hjá sér í
bráðavistun.Vilja frekar að börn séu í
bráðavistun á stofnun en hjá
ættingjumAlgengast er að börn séu
bráðavistuð hjá nánum ættingjum. Gæða-
og eftirlitsstofnun velferðarmála leggur
hins vegar til að frá og með janúar 2027
séu börn frekar vistuð í úrræðum á vegum
sveitarfélaga sem hafi sótt um leyfi til
bráðavistunar.Félag fósturforeldra
gagnrýnir þessi tilmæli og segir það
alltaf börnum fyrir bestu að vera
bráðavistuð hjá fólki sem þau þekkja og
hafa tengsl við.,,Við svona veltum því
fyrir okkur hvort gæðastofnun
velferðarmála sé að leggja það til að í
hverri einustu fjölskyldu sé einhver
útvalinn sem ætlar að hafa þetta
bráðavistunarleyfi?"Að bráðavista börn í
úrræði á vegum sveitarfélags tryggi auk
þess ekki betra eftirlit með högum
þeirra, segir Guðlaugur.Ráðherra vill
endurskoða málaflokkinn frá grunniÍ
athugasemdum Félags fósturforeldra um
skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunarinnar
segir að skýrslan svari ekki þeim
spurningum sem ríkisstjórnin hafi viljað
svör við, og samfélagið hafi kallað
eftir.,,Bakkakotsmálið snerist um það að
tryggja og vita, er annað Bakkakotsmál í
gangi og koma í veg fyrir að annað
Bakkakotsmál verði."Guðlaugur nefnir
dæmi úr skýrslunni þar sem segir að
stofnunin hafi, í samtali við ungmenni í
fóstri, séð að nauðsynlegt væri að kanna
aðstæður barnsins betur. En, sökum þess
að fósturheimili barnsins hafi ekki
verið með leyfi frá stofnuninni, hafi
verið ákveðið að skoða málið ekki
frekar.,,Skýrslan segir: það er annað mál
þarna úti og skýrslan segir líka við
ætlum ekki að skoða það."Ragnar Þór
Ingólfsson, félags- og
húsnæðismálaráðherra, segir að unnið sé
að því að finna málefnum fósturbarna
betri farveg og tryggja öflugra
eftirlit.,,Það þarf að endurskoða þennan
málaflokk frá grunni og tryggja að börn
sem fara í fóstur njóti auðvitað
sammælis og það sé gott og virkt
eftirlit," segir Ragnar Þór.Hann segir
ríkisstjórnina vinna að því hörðum
höndum að reyna að koma í veg fyrir að
mál, eins og Bakkakotsmálið, geti komið
upp aftur.Ábyrgð á málefnum fósturbarna
dreifð um kerfiðEnginn veit hve mörg
börn eru í bráðavistun enda er ábyrgð á
málefnum fósturbarna dreifð. Í
skýrslunni kemur fram að stofnunin hafi
vitneskju um að í þónokkrum tilfellum
hafi barnaverndarþjónustur vistað börn á
einkaheimilum til lengri tíma og jafnvel
fjölda ára.Félag fósturforeldra hefur
lengi gagnrýnt samskiptaleysi
sveitarfélaga og ríkisins í
málaflokknum.Sveitarfélög bera ábyrgð á
barnaverndarþjónustum, sem svo gera
fóstursamninga og bera ábyrgð á að
eftirliti sé sinnt.Barna- og
fjölskyldustofa heyrir undir mennta- og
barnamálaráðuneyti. Hún sinnir fræðslu
til fósturforeldra og heldur námskeið
sem eru ætluð þeim.Gæða- og
eftirlitsstofnun velferðarmála heyrir
svo undir félags- og
húsnæðismálaráðuneytið. Hún hefur
eftirlit með barnaverndarþjónustum og
gefur út rekstrarleyfi til
fósturforeldra.

Birt: 18.10.2026 20:06
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA