102/15RÚV - INNLENT13:30
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum

Samvinna björgunarsveitarmanna og
sérsveitar lögreglu varð til þess að
leit að manni sem féll í Stuðlagil í
ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á
botni árinnar með aðstoð myndavélar.
Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í
straumvatnsbjörgun segir skipta máli að
fólk finnist, hvort sem það er lífs eða
liðið.Samstarf skipti sköpumFjölmennt
lið var kallað út þegar maður, sem var á
ferðalagi hér frá Póllandi, féll í
Stuðlagil í lok ágúst, þar á meðal
straumvatnsbjörgunarsveitarmenn. Magnús
Stefán Sigurðsson,
straumvatnsbjörgunarsveitarmaður, segir
að samstarf björgunarsveitarmanna og
sérsveitar lögreglu hafi skipt sköpum
við leitina.,,Lögreglan kemur þarna með
myndavél og fær okkur til þess að
aðstoða sig við að nota hana og það
skilaði þessum árangri, að viðkomandi
finnst," segir Magnús Stefán.Myndavélin
var fest á stöng, hún sett undir
vatnsyfirborðið og svo farið niður eftir
ánni.,,Og skoðum svo myndefnið eftir á og
finnum þá viðkomandi," segir Magnús
Stefán.,,Leggjum okkur fram eins mikið og
við mögulega getum"Maðurinn var látinn
þegar hann fannst í djúpum hyl í ánni.
Þrátt fyrir að Jökla hafi ekki verið
grugguð þennan dag þá var ekki hægt að
sjá til mannsins frá árbakkanum.,,Það var
engin leið að sjá hann, við vorum búnir
að reyna allt og fara yfir hann nokkrum
sinnum, það var ekki fyrr en sérsveitin
kom með sinn búnað sem hann
fannst."Leitarstörf stóðu yfir í um átta
klukkustundir. Magnús Stefán segir
skipta máli að fólk finnist, hvort sem
það er lífs eða liðið.,,Það eru allir
einstaklingar jafn mikilvægir hvort sem
þeir eru lifandi eða liðnir. Þannig að
við leggjum okkur fram eins mikið og við
mögulega getum, fyrir fjölskyldu og
aðstandendur."Þetta var annað banaslysið
í Stuðlagili á tveimur árum. Á tíu árum
hafa tólf látist eftir fall í á eða vatn
á Íslandi, samkvæmt tölum
Ferðamálastofu. Flest banaslysin hafa
verið á Suðurlandi eða átta. Magnús
Stefán segir slysin oftast bundin við
vinsæla ferðamannastaði.,,Og við þurfum
að bregðast við því á sama tíma og
landeigendur þurfa að bregðast við sínum
vörnum og forvörnum."Æ oftar reynir á
straumvatnsbjörgunarmenn á
ferðamannastöðum. Samstarf
björgunarsveitarmanna og sérsveitar
lögreglu skiptu sköpum við leit að manni
sem féll í Stuðlagil í ágúst.

Birt: 18.10.2026 19:54
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA