102/17RÚV - INNLENT13:28
Bjartsýni um samstarf ,,kannski
barnaskapur"

Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki
Viðreisnar í vikunni, en hyggst sitja
áfram á þingi sem þingmaður utan
þingflokks. Hann sagði ástæðu
úrsagnarinnar bæði pólitíska og
skipulagslega - innan þingflokks
Viðreisnar væri viðvarandi forystuleysi,
ákvarðanafælni og klíkumyndun.Þá vísaði
hann einnig til ágreinings um
forgangsröðun og sagðist hafa viljað sjá
frekari áherslu á málefni barna í
flóknum vanda.Jón segir að hann hafi að
undanförnu átt í samtölum við flokksmenn
Viðreisnar. Hann viti ekki til þess að
einhverjir þeirra séu að íhuga stöðu
sína innan flokksins.,,En það kæmi mér
ekki á óvart ef svo væri. En ég er ekki
alveg upplýstur um það á þessari
stundu," segir Jón.Sjálfur hafi hann
ekki íhugað að skipta um
stjórnmálaflokk.,,En ég er genginn úr
þessum þingflokki og ég ætla ekki að æra
óstöðugan meira en orðið er."Gæti breytt
afstöðu sinni í ljósi nýrra
upplýsingaJón gerði skriflegt samkomulag
um samstarf og stuðning við
ríkisstjórnina og heldur áfram að sinna
nefndarstörfum fyrir Viðreisn. Hann
segir að það gæti þó breyst.,,Ég veit
ekkert hvernig þessi mál koma til með að
þróast en ég gæti alveg hugsanlega
breytt afstöðu minni í ljósi nýrra
upplýsinga," segir hann.,,Ég er núna bara
að taka einn dag í einu, eða jafnvel
hálfan og hálfan dag í einu, og reyna að
meta afstöðu þingflokksins og flokksins
og talsmanna flokksins til mín."Það
samkomulag sem hann hafi gert um
samstarf og stuðning við ríkisstjórnina
byggi á virðingu og trausti.,,Og ef það
er ekki til staðar þá er það kannski
barnaskapur að halda að maður geti unnið
saman.",,Mér þykir bara mjög miður hver
staðan er"Jón segir að ummæli Gríms
Grímssonar, þingmanns Viðreisnar, í
Vikulokunum á samtengdum rásum Rásar 1
og Rásar 2 hafi komið illa við sig.
Grímur lét þau orð falla í þættinum að
lítið hafi gerst í þingnefnd um málefni
barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem
Jón fór fyrir.Jón telur ummælin aðför að
sinni persónu og heilindum sem
stjórnmálamaður.,,Grímur hafði samband
við mig og bað mig afsökunar á þessu og
ég meðtók það. Grímur er toppmaður og ég
kann alveg gríðarlega vel við hann og
ber mikla virðingu fyrir honum," segir
Jón.Staðan sé dapurleg.,,Ég ber enga
gremju eða reiði til þessara félaga
minna. Ekki neitt slíkt. Mér þykir þetta
bara mjög miður hver staðan er," segir
Jón.,,Og líka leiðinlegt að vera með
upplifun sem aðrir upplifa ekki. Það er
sérstakt líka."Gæti farið svo að þú
segir þig úr Viðreisn og verðir óháður
þingmaður?,,Ég sé ekkert í augnablikinu
sem gæti orðið til þess. En ég get
ekkert útilokað það."

Birt: 18.10.2026 19:35
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA