102/20RÚV - INNLENT13:28
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með
grímur tóku 13 ára stúlku höndum

Óeinkennisklæddir lögreglumenn ruddust
inn í hús á Suðurnesjum og tóku 13 ára
stúlku höndum í apríl 2025. Aðgerðin
sneri að leigjanda sem bjó í sama húsi
en var ótengdur stúlkunni. Nefnd um
eftirlit með lögreglu gerir athugasemdir
við framgöngu lögreglu. Stúlkan var ein
heima þegar bankað var harkalega á rúðu
á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði
dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir
menn með grímur fyrir vitunum. Stúlkan
varð að vonum hrædd og hljóp inn í
húsið. Einn mannanna hljóp á eftir
henni, greip í hendur hennar þar sem hún
reyndi að hlaupa upp stigann og hélt
þeim fyrir aftan bak.Stúlkan grét og
öskraði á móður sína þar til
lögreglukona kom að og sagði henni að
þau væru á vegum lögreglunnar. Hún var í
haldi lögreglunnar í um 15
mínútur.Lögregluaðgerðin snerist um
rannsókn á fíkniefnainnflutningi en
brotamaðurinn var leigjandi í húsinu og
tengdist stúlkunni því ekki. Eftir því
sem lögreglan segir þá vissu þeir ekki
að í húsinu væri önnur íbúð sem er leigð
út.Héldu ranglega fram að stúlkan hefði
hringt í móður sínaMóðir stúlkunnar
kvartaði til Nefndar um eftirlit með
lögreglu, sem tók málið fyrir öðru sinni
í haust eftir að ný gögn bárust sem
studdu málflutning mæðgnanna. Þær höfðu
meðal annars kvartað undan því að
stúlkan hefði ekki fengið að hafa
samband við móður sína.Gögn úr síma
hennar staðfestu að móðirin hefði reynt
að hringja í dóttur sína á þessum tíma
en ekki verið svarað.Í fyrra skiptið sem
málið var tekið fyrir af nefndinni hélt
lögreglan á Suðurnesjum því ranglega
fram að stúlkan hefði fengið að hringja
í móður sína. Gögn úr síma móðurinnar
sýna aftur á móti að ekkert slíkt símtal
átti sér stað.Lögreglan segir að þessu
hafi verið haldið fram fyrir mistök.
Lögregla hafi talið skjáskot af síma
stúlkunnar, sem sýndi ósvarað símtal,
vera skjáskot af síma móður hennar.
Lögreglan segist hafa talið að
skjáskotið væri sönnun þess að stúlkan
hefði fengið að hringja í móður sína,
þegar skjáskotið sannaði hið gagnstæða,
það er að móðirin gat ekki náð í dóttur
sína.Hafði djúpstæð áhrif á stúlkunaÍ
ákvörðun nefndarinnar segir að þrátt
fyrir að atburðarásin hafi haft djúpstæð
áhrif á stúlkuna sé ekki beinlínis um
ámælisverða háttsemi lögreglu að ræða.
Aftur á móti sé tilefni til að læra af
þessu máli.Nefndin beinir þeim tilmælum
til embættisins að hagsmunir barna séu
sérstaklega hafðir í huga við
lögregluaðgerðir og að óeinkennisklæddir
lögreglumenn, sem beiti
þvingunaraðgerðum, geri grein fyrir sér,
sér í lagi þegar börn eða ungmenni eiga
í hlut.

Birt: 18.10.2026 17:46
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA