Felldu 1,4 milljarða sekt úr gildi og vísuðu til nýrrar meðferðar Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sölu Landsvirkjunar vegna orkutapa Landsnets var gölluð því markaðir höfðu ekki verið skilgreindir sem skyldi. Þess vegna ákvað áfrýjunarnefnd samkeppnismála að fella úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem eftirlitsstofnunin lagði á fyrirtækið.Áfrýjunarnefndin kvað úrskurð sinn upp í dag. Hún felldi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og vísaði henni aftur til eftirlitsins til nýrrar rannsóknar og ákvörðunar.Til skoðunar voru viðskipti Landsvirkjunar og Landsnets 2017-2021. Nokkrir annmarkar þóttu á rannsókninni sem urðu til þess að áfrýjunarnefndin taldi málið ekki fyllilega upplýst. Úrskurðarnefndin sagði að hver og einn annmarkanna væri verulegur.Ekki hafi staðið steinn yfir steiniÍ yfirlýsingu Landsvirkjunar um úrskurðinn segir að með honum sé staðfest að ekki hafi staðið steinn yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Markaðir hafi ekki verið skilgreindir með fullnægjandi hætti og ekki gerð viðhlítandi rannsókn á hugsanlegum samkeppnishamlandi áhrifum ætlaðs verðþrýstings.Landsvirkjun segir úrskurðinn líka undirstrika nauðsyn þess að reglur og markaðsskilgreiningar séu skýrar og fyrirsjáanlegar áður en íþyngjandi viðurlögum sé beitt, líkt og gert hafi verið í þessu tilfelli.Málaferli eða ný ákvörðunÍ tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að farið verði yfir forsendur úrskurðarins og næstu skref metin. Einnig verður leitað eftir sjónarmiðum aðila á markaði og annarra stjórnvalda á EES-svæðinu. Að því loknu ákveður eftirlitið hvort það beri úrskurðinn undir dómstóla eða taki nýja ákvörðun á grundvelli úrskurðarins. Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Samkeppniseftirlitsins. Birt: 19.10.2026 11:20 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|