102/6RÚV - INNLENT13:26
Hætt við tímabundið hverfi fyrir
farandverkamenn

Ekkert verður af því að komið verði upp
húsnæði fyrir tímabundna búsetu við
Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg.
Hugmyndin var að þar gæti
farandverkafólk búið í öruggu húsnæði.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur ákveðið að falla frá þessum
áformum. Það gerir hann meðal annars
vegna þeirrar óánægju sem hefur komið
fram meðal íbúa. Hátt í 300 mættu á
íbúafund um fyrirhugaða uppbyggingu.
Margir létu í ljós óánægju sína.Greint
er frá örlögum verkefnisins á vef
Hafnarfjarðarbæjar. Þar er haft eftir
Orra Björnssyni, formanni bæjarráðs
Hafnarfjarðar, að meirihlutinn hafi
talið þetta áhugaverða hugmynd til að
mæta raunverulegri þörf á
húsnæðismarkaði. Að höfðu samráði við
íbúa og eftir að hafa yfirfarið
forsendur verkefnisins hafi meirihlutinn
talið rétt að falla frá áformunum.

Birt: 19.10.2026 10:24
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA