102/7RÚV - INNLENT13:26
Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu
lögregluembætta

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggst gegn því
að embætti lögreglustjórans á
Vestfjörðum verði lagt niður í
fyrirhuguðum breytingum á skipulagi
lögreglu.Í umsögn um frumvarp til
breytinga á lögreglulögum sem bæjarráð
fól bæjarstjóra að senda inn í
samráðsgátt á fundi fyrir helgi segir að
Vestfirðingar búi við sérstakar
landfræðilegar aðstæður, langar
vegalendir, fjallvegi og tíðar
samgöngutruflanir.Mikilvægt sé að
viðbragðsaðilar og almannavarnir búi
yfir staðbundinni þekkingu og geti tekið
skjótar ákvarðanir þegar vá steðji
að.Bæjarráðið segir sameiningu embætta
og aukna miðstýringu ekki sjálfkrafa
tryggja eflingu lögreglu og bættar
starfsaðstæður. Þvert á móti telur
bæjarráðið að brýnt sé að bæta búnað og
tryggja nægan mannafla og stjórnun á
Vestfjörðum.Miðað við þær hugmyndir sem
fram hafa komið yrðu þrjú
lögregluembætti á landinu eftir
sameiningu. Norðurland, Vesturland og
Vestfirðir yrðu sameinuð í eitt embætti
sem næði frá Hvalfirði í Vopnafjörð.
Dómsmálaráðherra hefur gefið út að
lögreglustöðvum myndi ekki fækka en
aðalstöðvar yrði þrjár í stað níu.Áður
hafa bæjarráð Vestmannaeyjabæjar og
Fjarðabyggðar og byggðaráð Borgarbyggðar
lýst óánægju með sameiningaráformin.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum í september samþykkti
jafnframt að skora á dómsmálaráðherra að
embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum
verði áfram sjálfstætt lögregluembætti.
Fréttin hefur verið uppfærð með
upplýsingum um að fleiri sveitarfélög
hafa lagst gegn tillögunum.

Birt: 19.10.2026 09:55
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA