Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly Play Europe Kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe eru fullfrágengin. Fyrirtækið tilkynnti Kauphöllinni í dag að öll skilyrði fyrir kaupunum hefðu verið uppfyllt.Fly Play Europe var stofnað í tengslum við rekstur flugfélagsins Play og er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Forsvarsmenn Icelandair hafa sagt að kaupin á félaginu auki sveigjanleika og samkeppnishæfni þess. Þar með gefist færi á að hagræða í rekstri.Flugmenn gagnrýndu kaupin og sögðu að með þeim væri grafið undan íslenskum kjarasamningum. Þeir tengdu þetta við áherslu Icelandair á að leigja inn flugvélar með áhöfnum.Flugvél Icelandair kemur inn til lendingar.EPA / Olivier Matthys Birt: 19.10.2026 09:38 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|