103/11RÚV - ERLENT13:28
Olíuflutningaskip brennur á Hormússundi

Olíuflutningaskip brennur á Hormússundi
eftir að hafa siglt á tundurdufl. Eldur
er laus í vélarrúmi skipsins. Þetta
hefur AFP eftir byltingarverðinum í
Íran.Flutningaskip á Hormússundi.AP /
UncreditedÍranar viðhalda ströngum
takmörkunum á umferð um Hormússund og
hafa í því skyni komið tundurduflum
fyrir í sundinu. Byltingarvörðurinn
segir að skipið sem hafi slökkt á
staðsetningarbúnaði sínum og siglt í
trássi við siglingabann í suðurhluta
Hormússunds.Tvö önnur skip sigldu á
tundurdufl í vikunni með þeim
afleiðingum að eldur kviknaði um borð.
Írönsk stjórnvöld hafa tilkynnt að öll
skip sem slökkva á staðsetningarbúnaði
sínum verði flokkuð sem óvinaskip.

Birt: 19.10.2026 04:19
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA