Trump lýsir yfir stuðningi við Netanjahú í komandi kosningum Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í gær formlega yfir stuðningi við Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels í aðdraganda þingkosninga í landinu.,,Bibi Netanjahú hefur verið sterkur, hugrakkur og stórkostlegur gegn hinni miklu mótstöðu, þar á meðal innan Ísraels," sagði Trump í færslu á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social.,,Það er slíkur félagi sem Bandaríkin búast við af Ísrael, landi sem við höfum gert svo mikið fyrir." Þá lýsti Trump yfir fullkomnum stuðningi við Netanjahú í komandi kosningum.Ætla að eyða ,,írönsku ógninni" samanNetanjahú þakkaði Bandaríkjaforseta fyrir stuðninginn og benti samlöndum sínum á að enn þá væri verk að vinna.Í nýlegu kynningarmyndbandi sem Likud, flokkur forsætisráðherrans, birti á samfélagsmiðlum segir Netanjahú að saman hafi hann og Trump rústað Íran og að endurkjör muni þýða að þeir geti eytt írönsku ógninni fyrir fullt og allt á næstu tveimur árum, jafnvel fyrr.Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran svaraði þessum yfirlýsingum með aðvörunum um að Netanjahú væri að etja Bandaríkjunum aftur út í stríð.Kosningarnar mælikvarði á störf NetanjahúsKosningarnar verða haldnar 27. október og samkvæmt kosningaspám verður mjótt á mununum. Mótframbjóðandi Netanjahús, Gadi Eisenkot, gerir sig líklegan til að ógna stöðu hans, en Eisenkot er formaður flokksins Yashar, sem er á miðjunni til hægri á hinu pólitíska rófi.Þetta verða fyrstu kosningarnar í landinu frá árás Hamas-samtakanna 7. október 2023 og því er sérstaklega litið á þær sem mælikvarða á störf Netanjahú og stríðsáætlanir hans.Hann hefur legið undir ámæli fyrir að bera að hluta til ábyrgð á árás Hamas, en hann hefur verið ásakaður um að hafa haft vitneskju um áform samtakanna sjöunda október, þar á meðal af Eisenkot.Netanjahú hefur setið í forsætisráðherrastólnum í 19 ár alls, lengst allra forsætisráðherra Ísraels, þó með hléum. Birt: 19.10.2026 03:33 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|