103/13RÚV - ERLENT13:27
Ræstitæknir læstist inni í klefa í þrjá
sólahringa

Ræstitæknir læstist inni í klefa í
byggingu landsréttar í Kaupmannahöfn og
sat þar föst í þrjá sólarhringa áður en
hún fannst. Danska ríkisútvarpið greinir
frá.Frá Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn, sem
er þó ekki byggingin þar sem konan
læstist inni.EPA / Sebastian Elias
UthKonan var að þrífa í kjallara í
gömlum byggingum Eystri-landsréttarins í
Kaupmannahöfn á miðvikudegi í september
þegar hurð að baki henni small í lás.
Klefadyrnar var ekki hægt að opna innan
frá og konan var ekki með síma á sér svo
hún gat ekki kallað á hjálp.Maður
konunnar hafði verið fjarverandi en kom
heim á laugardegi og fór að leita að
henni. Hann kom auga á hjól hennar fyrir
utan bygginguna og kallaði til lögreglu.
Konan fékk áfallahjálp og hefur snúið
aftur til starfa.

Birt: 19.10.2026 02:43
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA