103/14RÚV - ERLENT13:28
Norska HM-tromman seldist á 16,7
milljónir á uppboði

Tromman sem ferðaðist með norska
karlalandsliðinu í fótbolta á
heimsmeistarakeppnina í fótbolta í ár
hefur verið seld fyrir metupphæð. Frá
þessu greinir norska ríkisútvarpið.
Tromman er árituð af öllum norsku
landsliðsmönnunum.Tromman var boðin upp
í sjónvarpssöfnuninni TV-aksjonen á NRK
þar sem fé var safnað til styrktar
Flóttamannahjálp Noregs.Eftir 277 boð
frá 32 áhugasömum kaupendum var tromman
seld á 1,3 milljónir norskra króna, en
það jafngildir 16,7 milljónum íslenskra
króna. Nafn kaupandans hefur ekki verið
gefið upp.Reru í stað þess að
,,húa"Norska karlalandsliðið náði besta
árangri á HM í sögu liðsins með því að
komast alla leið í átta liða úrslit
eftir frækilegan sigur á Brasilíu. Þeir
voru þó á endanum slegnir út af Englandi
í uppbótartíma.Norsku stuðningsmennirnir
unnu engu að síður hug og hjörtu
fótboltaaðdáenda víða um heim með
einkennandi fögnuði sem þótti minna á
íslenska víkingaklappið, en þó með nýjum
brag. Í stað þess að klappa og húa, reru
þeir ímynduðum bátum og hrópuðu
,,Ro!"Tromman gegndi lykilhlutverki við
að slá taktinn fyrir ,,víkingaróðurinn"
svonefnda og börðu ekki ómerkilegri menn
á trumbuna en fótboltastjarnan Erling
Braut Haaland og Hákon
Noregskonungur.HM-tromman þykir með
öðrum orðum afar mikilvægur hluti
norskrar íþróttasögu en nú er hún vísast
komin í einkaeigu einlægs aðdáanda.

Birt: 19.10.2026 01:22
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA