Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð Mark Carney forsætisráðherra Kanada segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir að fjórir hermenn létust og tugir slösuðust alvarlega eftir stórbruna sem braust út í Wainwright-herstöðinni í Alberta í Kanada í gærkvöld.Carney sagði að eldurinn hefði verið ofsafenginn og hefði breiðst hratt út.,,Og það sem á eftir fylgdi var einn versti harmleikur sem herlið hefur orðið fyrir á kanadískri grund á friðartímum."Þetta sagði Carney þegar hann ræddi við blaðamenn síðdegis og sagði þar brunann einn versta harmleik sem orðið hafi hjá kanadíska hernum á friðartímum.Tildrög eldsins liggja ekki fyrir en varnarmálayfirvöld í Kanada segja ekkert benda til hryðjuverka. Rannsókn er hafin á því hvernig eldurinn kviknaði og sagði Carney að búast mætti við frekari upplýsingum síðar í dag. Birt: 18.10.2026 21:35 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|