103/17RÚV - ERLENT13:27
Macron: ,,Hvað er í gangi í hausnum á
þeim?"

Emmanuel Macron forseti Frakklands
boðaði aðgerðir til að bregðast við
óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem
hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins
vegar skemmdarvarga harðlega og sagði
nauðsynlegt að þeir svöruðu til
saka.Macron byrjaði ávarpið á því að
fordæma skemmdarverkin, sem hann sagði
að engin réttlæting væri fyrir. Þau
hefðu verið framin af vinstri
öfgamönnum. ,,Þegar við sáum þessar
myndir spurðum við okkur öll: Hvað er í
gangi í hausnum á þeim? Hvernig geta
Frakkar gert Frakklandi þetta?" Hann hét
gagnsærri rannsókn á viðbrögðum
sérsveitar lögreglu við mótmælunum um
helgina.Macron sagði þó að mótmælendur
sem lýst höfðu óánægju sinni hefðu
sitthvað til síns máls. Meðal annars
myndi hann ræða við leiðtoga
Miðausturlanda um verð á olíu en nú
þyrftu allir stjórnmálaflokkar að
fordæma ofbeldi. ,,Ég kalla eftir ró. Nú
þurfa allir að taka ábyrgð. Landið þarf
reglu og ástandið þarf að róast, ekki
stigmagnast."Innanríkisráðuneytið
greindi frá því að hátt í 2.400 manns
hefðu verið handteknir í mótmælunum og
um 1000 lögreglumenn slasast í
mótmælunum, þar af sjö alvarlega.

Birt: 18.10.2026 18:53
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA