103/18RÚV - ERLENT13:27
Ætla að verða fyrstir til að senda
könnunargeimfar að Mars og til baka

Ef allt fer samkvæmt áætlun verður
leiðangur Japönsku
geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti
sem farinn verður fram og til baka en
ferðir til Mars hafa hingað til einungis
verið í aðra áttina.Markmið
leiðangursins er að safna sýnum sem gætu
varpað ljósi á uppruna
sólkerfisins.Könnunarfarinu verður
skotið frá
Tanegashima-geimvísindastöðinni á
þriðjudag klukkan 04:41 að staðartíma,
eða 19:41 að íslenskum tíma.
Könnunarfarið nálgast Mars ári seinna
þar sem það mun vera á sporbaug um
tunglið Phobos í allt að þrjú ár áður en
það lendir á yfirborði þess.Krílríkur
krafsar í tungliðÞar mun könnunarjeppinn
IDEFIX framkvæma yfirborðsrannsóknir og
safna sýnum, en Idéfix er franska nafnið
á Krílríki, hundi Steinríks alvaska í
Ástríksbókunum.Vísindamenn JAXA segja
enn fremur að leiðangurinn verði nýttur
til að kanna möguleikann á að nota
Phobos sem eins konar náttúrulega
geimstöð þar sem tunglið er utan
þyngdarafls Mars.Kínverskar og
bandarískar geimvísindastofnanir hafa
keppst um að vera þær fyrstu til að snúa
aftur með jarðvegssýni frá
Mars.Könnunarjeppi NASA, Perseverance,
hefur ekið um rauðu plánetuna síðan árið
2021 og safnað sýnum en ríkisstjórn
Donalds Trump stöðvaði verkefnið og
hefur NASA ekki getað komið þeim heim.

Birt: 18.10.2026 16:24
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA