103/20RÚV - ERLENT13:27
,,Síðan tók lögregla upp á því að henda
táragasi á fjöldann"

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður
Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í
borginni Angers í vesturhluta Frakklands
í gær. Mótmæli hafa farið fram víðs
vegar um landið síðustu daga og segir
innanríkisráðherra Frakklands að alls
hafi um 1.800 verið handteknir í
gær.Rósa Björk segir mikla spennu hafa
verið í loftinu í Angers í gær.,,Þar voru
mótmæli eins og víða um allt Frakkland.
Yfirvöld telja að um 550 þúsund manns
hafi mótmælt en skipuleggjendur
mótmælanna telja að um 800 þúsund manns
hafi farið út á götur um allt
Frakkland," segir hún.Rósa Björk
Brynjólfsdóttir formaður Vinstri grænna
segir mikla spennu hafa verið í borginni
Angers þegar hún tók þátt í mótmælum þar
í gær. Brotist hafi verið inn í hluta
ráðhúss borgarinnar og beitti lögregla
táragasi.Lögregla beitti hópinn
táragasiMótmælin snúast að mestu um háan
framfærslukostnað. Mótmælin hófust í
byrjun mánaðar þegar framhaldsskólanemar
kröfðust betri aðbúnaðar í
skólum.,,Meirihlutinn af þeim sem voru að
mótmæla voru námsmenn," segir Rósa. Hún
segir námsmenn einnig mótmæla háu
leiguverði og þröngum kosti á
stúdentagörðum.,,En svo hafa þeir líka
verið að mótmæla þjóðarmorðinu á Gaza,
aðgerðaleysi gagnvart
loftslagsbreytingum og uppgangi
öfgahægrisins," segir hún. Hins vegar
hafi verið boðað til almennra mótmæla í
gær. Því hafi stór hluti af öðru fólki
sem mótmælti háu verðlagi bæst í
hópinn.,,Ég gekk með mótmælunum yfir
daginn og þetta virkaði svona
friðsamlegt en mikil spenna í loftinu,
maður fann verulega fyrir því," segir
Rósa.,,Síðan tók lögregla upp á því að
henda táragasi á fjöldann á mannfjöldann
og mér sýndist það nú ekki hafa verið
ástæða fyrir því, mér fannst það vera
harkalegt af hálfu lögreglunnar og við
fundum meira að segja fyrir því, ég og
fólkið í kringum mig, fundum fyrir þessu
táragasi og það sveið í augun," segir
húnBrotist inn í hluta ráðhússinsMeðal
mótmælenda hafi þó leynst
skemmdarvargar.,,Ég varð vitni að því að
það var verið að brjóta strætóskýli og
sömuleiðis brotist inn í hluta
ráðhússins hér í Angers, en það var nú
bara mjög fámennur hópur og restin af
þeim sem voru að ganga kom ekki nærri
því.Rósa segir að hún hafi einnig heyrt
í vinum sem staddir voru í París. Mikil
læti hafi verið sérstaklega í tíunda og
ellefta hverfi borgarinnar og í kringum
Place de la Republique.,,Þar voru gluggar
brotnir, fyrirtæki fengu að finna fyrir
því að það var verið að skemma bæði
glugga og rúður og ráðist inn í litla
veitingastaði, mikið, ég verið að brenna
strætóskýli og svoleiðis, þannig að
þetta náttúrulega setur svartan blett á
mótmæli stúdenta sem almennt séð
almenningur í Frakklandi hefur staðið
með," segir Rósa.

Birt: 18.10.2026 14:17
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA