103/21RÚV - ERLENT13:27
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum
klukkustundum

Nýr samlokusími tæknirisans Apple
seldist upp á örfáum klukkustundum eftir
að opnað var fyrir forsölu. Áætlað er að
sumar pantanir verði ekki komnar til
viðskiptavina fyrr en eftir áramót,
samkvæmt umfjöllun fjölmiðla
vestanhafs.Apple kveðst enn ætla að taka
við pöntunum.iPhone Duo hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu og er
dýrasti snjallsími Apple hingað til.
Verðið er frá 1.999 Bandaríkjadölum til
3.199 dala eftir því hvaða útgáfa er
keypt - jafnvirði um 240 til tæplega 390
þúsund króna.Apple hefur, líkt og önnur
tæknifyrirtæki, verið í vandræðum með að
halda í við eftirspurn vegna skorts á
íhlutum, þá einkum minniskubbum. Því
hefur fyrirtækið hækkað verð á vörum
sínum að undanförnu.

Birt: 18.10.2026 13:27
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA