103/3RÚV - ERLENT13:26
Fær umboðið en dreymir ekki um stól
forsætisráðherra

Andreas Norlén, forseti sænska þingsins,
fól Elisabeth Thand Rinqvist, formanni
Miðflokksins, að reyna að mynda
ríkisstjórn með þátttöku flokka af
hægri- og vinstrivæng sænskra
stjórnmála.Ekki hefur tekist að mynda
nýja ríkisstjórn á þeim rúmlega mánuði
sem liðinn er síðan Svíar gengu að
kjörborðinu. Ríkisstjórnin sem var við
völd á síðasta kjörtímabili missti
meirihluta sinn. Vinstri- og
miðjuflokkarnir hlutu meirihluta en náðu
ekki samkomulagi um myndun
ríkisstjórnar.Elisabeth Thand Rinqvist
sagði í viðtali við sænska sjónvarpið,
SVT, í dag að meginmarkmið sitt væri að
leggja sitt af mörkum til að greiða
fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hún
sagði markmið sitt ekki vera það að
verða forsætisráðherra. Fram undan eru
viðræður hennar við formenn allra flokka
á þingi.Rinqvist sagði í viðtali við TT
að Magdalena Anderson, formaður
Jafnaðarmanna, væri líklegust til að
verða forsætisráðherra í miðju- og
hægristjórn.

Birt: 19.10.2026 12:52
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA