Borgarstjórar fá leyfi til að setja á útgöngubann Franska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun vegna óeirða um helgina. Sebastian Lecornu forsætisráðherra ætlar að veita borgarstjórum leyfi til að setja útgöngubann sem er ætlað að vernda borgara og búðir. Ekki hefur verið tilgreint í hvaða borgum.Yfir 700 eru enn í varðhaldi eftir mótmæli helgarinnar. Yfir 2.000 fyrirtæki urðu fyrir barðinu á mótmælunum samkvæmt Viðskipta- og iðnaðarráði Frakklands. Talið er að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra.Dagblaðið Le Parisien greinir frá því að einn hafi látist í mótmælum í París og talið er að hann hafi fengið hjartaáfall.Laurent Nuñez innanríkisráðherra viðurkenndi í morgun að lögreglan hefði misst stjórn á mótmælum í nokkrum borgum. Hann baðst lausnar úr embætti í gær en Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafnaði því en bað hann um nýtt verklag fyrir lögreglu og öryggissveitir. Macron vill að farið verði í saumana á því hvers vegna mótmælin fóru úr böndunum.Mótmælahreyfingin Gulu vestin sem skipulagði mótmælin um helgina boðar frekari mótmæli á laugardag. Birt: 19.10.2026 12:26 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|