103/5RÚV - ERLENT13:26
Farþegar sem spila háværa tónlist í
strætó geta átt yfir höfði sér sekt

Farþegar sem spila háværa tónlist í
strætisvögnum á Englandi gætu átt á
hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld
ætla að taka harðar á óæskilegri og
truflandi hegðun í
almenningssamgöngum.Sektin nemur allt að
100 pundum, jafnvirði rúmlega 16 þúsund
króna. Aðgerðir stjórnvalda miða einnig
að því að taka á öðrum hlutum eins og að
skilja eftir rusl á víð og dreif, veipa
og sýna ógnandi hegðun. Sveitarfélög fá
nýjar heimildir til að sekta þá sem gætu
verið brotlegir í
strætisvögnum.Stjórnvöld eru einnig að
setja á koppinn landsátak sem hvetur
farþega í lestum til að ,,deila vagninum,
ekki hávaðanum," eins og það er
orðað.Andy Burnham, forsætisráðherra
Bretlands, sagði alla kannast við að
vera í lestum þegar einhver byrjar að
spila tónlist eða myndbönd úr símanum á
hæsta styrk. ,,Það getur farið verulega í
taugarnar á manni og fljótt eyðilagt
ferðina."Samkvæmt gildandi heimild má
vísa þeim, sem neita að hætta eftir að
hafa verið beðnir um það, út úr lest eða
sekta þá um allt að þúsund pund.Heidi
Alexander, samgönguráðherra, sagði
litlar breytingar geta breytt upplifun
fólks sem notar almenningssamgöngur til
muna.Stjórnvöld hafa gefið út nýjar
leiðbeiningar til sveitarfélaga um
heimildir til að taka á hárri
tónlistarspilun og óæskilegri hegðun í
strætisvögnum á Englandi. Þær gera
sveitarfélögum kleift að setja sérstakar
reglur um hegðun í vögnunum en
samgönguráðherra þarf þó að samþykkja
þær.Bílstjórar bera ekki ábyrgð á að
framfylgja reglunum heldur sjá
eftirlitsaðilar og lögreglan um að
bregðast við brotum. Farþegar geta
kvartað til þeirra.

Birt: 19.10.2026 11:18
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA