103/9RÚV - ERLENT13:26
Áttunda ebólusmitið greindist í Kenía

Ebólu hefur orðið vart í Kenýa. Í gær
greindist áttunda tilfellið samkvæmt
upplýsingum þýska fréttamiðilsins
Deutsche Welle.Talið er að maðurinn sem
smitaðist hafi komist í tæri við fyrsta
sjúklinginn sem greindist með ebólu í
landinu. Sá var kenískur ríkisborgari
búsettur í Kongó þar sem faraldurinn
hefur verið hvað skæðastur. Hann lést 5.
október.Fleiri sjúklingar með möguleg
einkenni hafa verið settir í sóttkví á
meðan beðið er eftir niðurstöðum
sýna.Skæðasti ebólufaraldurinn í
KongóHeilbrigðisyfirvöld í Kongó segja
ebólufaraldurinn hafa breiðst enn frekar
út og nái nú til átta héraða.Um miðjan
maí var lýst yfir að tilfellin væru
orðin að faraldri sem nú er sagður
orðinn sá skæðasti sem sést hefur í
Kongó.Frá því í maí hafa komið upp 9.400
tilfelli og skráð dauðsföll eru orðin
4.500.Ebóla er ein banvænasta veira sem
þekkt er. Það afbrigði sem smitast nú
manna á milli er sjaldgæft. Ekkert
viðurkennt bóluefni er til og því afar
erfitt að ná tökum á faraldrinum.

Birt: 19.10.2026 07:13
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA