Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu lögregluembætta Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður í fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu.Í umsögn um frumvarp til breytinga á lögreglulögum sem bæjarráð fól bæjarstjóra að senda inn í samráðsgátt á fundi fyrir helgi segir að Vestfirðingar búi við sérstakar landfræðilegar aðstæður, langar vegalendir, fjallvegi og tíðar samgöngutruflanir.Mikilvægt sé að viðbragðsaðilar og almannavarnir búi yfir staðbundinni þekkingu og geti tekið skjótar ákvarðanir þegar vá steðji að.Bæjarráðið segir sameiningu embætta og aukna miðstýringu ekki sjálfkrafa tryggja eflingu lögreglu og bættar starfsaðstæður. Þvert á móti telur bæjarráðið að brýnt sé að bæta búnað og tryggja nægan mannafla og stjórnun á Vestfjörðum.Miðað við þær hugmyndir sem fram hafa komið yrðu þrjú lögregluembætti á landinu eftir sameiningu. Norðurland, Vesturland og Vestfirðir yrðu sameinuð í eitt embætti sem næði frá Hvalfirði í Vopnafjörð. Dómsmálaráðherra hefur gefið út að lögreglustöðvum myndi ekki fækka en aðalstöðvar yrði þrjár í stað níu.Áður hafa bæjarráð Vestmannaeyjabæjar og Fjarðabyggðar og byggðaráð Borgarbyggðar lýst óánægju með sameiningaráformin. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum í september samþykkti jafnframt að skora á dómsmálaráðherra að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði áfram sjálfstætt lögregluembætti. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um að fleiri sveitarfélög hafa lagst gegn tillögunum. Birt: 19.10.2026 09:55 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|