112/12RÚV - FRÉTTIR12:37
Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly
Play Europe

Kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play
Europe eru fullfrágengin. Fyrirtækið
tilkynnti Kauphöllinni í dag að öll
skilyrði fyrir kaupunum hefðu verið
uppfyllt.Fly Play Europe var stofnað í
tengslum við rekstur flugfélagsins Play
og er með flugrekstrarleyfi á Möltu.
Forsvarsmenn Icelandair hafa sagt að
kaupin á félaginu auki sveigjanleika og
samkeppnishæfni þess. Þar með gefist
færi á að hagræða í rekstri.Flugmenn
gagnrýndu kaupin og sögðu að með þeim
væri grafið undan íslenskum
kjarasamningum. Þeir tengdu þetta við
áherslu Icelandair á að leigja inn
flugvélar með áhöfnum.Flugvél Icelandair
kemur inn til lendingar.EPA / Olivier
Matthys

Birt: 19.10.2026 09:38
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA