Áttunda ebólusmitið greindist í Kenía Ebólusmita hefur orðið vart í Kenýa en í gær greindist áttunda tilfellið samkvæmt upplýsingum þýska fréttamiðilsins Deutsche Welle.Talið er að maðurinn hafi komist í tæri við fyrsta sjúklinginn sem greindist með ebólu í landinu. Sá var kenískur ríkisborgari búsettur í Kongó þar sem faraldurinn hefur verið hvað skæðastur. Hann lést fimmta október.Fleiri sjúklingar með möguleg einkenni hafa verið settir í sóttkví á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku.Skæðasti ebólufaraldur í KongóHeilbrigðisyfirvöld í Kongó segja ebólufaraldurinn hafa breiðst enn frekar út í landinu og nú nái hann til átta héraða.Um miðjan maí á þessu ári var því lýst yfir að tilfellin væru orðin að faraldri og nú er hann sagður orðinn sá skæðasti sem sést hefur í Kongó.Frá því í maí hafa 9.400 tilfelli greinst, þar af eru skráð dauðsföll orðin 4.500.Ebóla er ein banvænasta veira sem þekkist en það afbrigði hennar sem smitast nú manna á milli er sjaldgæft. Ekkert viðurkennt bóluefni er til og því er afar erfitt að ná tökum á faraldrinum. Birt: 19.10.2026 07:13 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|