112/2RÚV - FRÉTTIR11:50
Veita sveitarfélögum upplýsingar um
niðurstöður PISA eftir allt saman

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur
tekið ákvörðun um að upplýsa þau
sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því
leita um sínar niðurstöður í PISA 2025.
Þetta kemur fram í tilkynningu
stjórnarráðsins.Þar segir að þau
sveitarfélög sem þegar hafi óskað eftir
sínum niðurstöðum muni fá þær afhentar
að lokinni frekari gagnagreiningu
ráðuneytisins úr hrágögnum OECD.Afstaða
ráðuneytisins virðist því hafa tekið
breytingum frá því fyrr í mánuðinum en
ráðuneytið birti upphaflega niðurstöður
úr sjö stærstu sveitarfélögum landsins,
sem ná til um 75% þátttakenda í PISA
2025 á Íslandi.Þess má geta að
niðurstöðurnar sem voru kynntar þá voru
bæði sýndar leiðréttar og óleiðréttar
með tilliti til félags- og
efnahagslegrar stöðu, það er menntunar
og starfs foreldra, eigna á heimilinu og
erlends bakgrunns. Af hverju voru
niðurstöður leiðréttar? Samkvæmt
upplýsingum frá mennta- og
barnamálaráðuneytinu sýna rannsóknir að
þessir þættir sýni talsverða fylgni við
námsárangur, meðal annars í
PISA.Leiðréttingin ber nemendur hvers
sveitarfélags saman við nemendur á
landsvísu í svipaðri félags- og
efnahagslegri stöðu og með sama
bakgrunn.Ef munur á frammistöðu nemenda
í sveitarfélagi og landsmeðaltali
minnkar eða hverfur við leiðréttinguna
skýrist munurinn að hluta eða að mestu
af samsetningu nemendahópsins.Í
tilkynningu þar um þann 8. október sagði
ráðuneytið að PISA-könnunin miðaði ekki
að því að veita niðurstöður fyrir
einstaka skóla heldur væri henni ætlað
að gefa heildarmynd af hæfni 15 ára
nemenda í hverju þátttökulandi. Því yrðu
niðurstöður ekki reiknaðar fyrir
einstaka grunnskóla eða fámenn
sveitarfélög hvert fyrir sig, heldur eru
fámennari sveitarfélög sýnd saman.Í
tilkynningunni í dag segir að
upplýsingagjöf til sveitarfélaga og
grunnskóla falli vel að áherslu þess
undanfarin misseri að fá fram heildstæða
yfirsýn yfir stöðu íslenskra barna í
námi.Þá verði niðurstöður Matsferils,
stöðu- og framvinduprófs í lesskilningi
og stærðfræði sem lögð voru fram í vor,
birtar opinberlega eftir skólum næsta
vor ásamt niðurstöðum í lesfimi. Með
þeim verður hægt að bera saman
niðurstöður milli skóla og jafnframt
fylgjast með þróun milli ára.

Birt: 19.10.2026 11:28
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA