112/20RÚV - FRÉTTIR12:37
Lægir þegar líður á daginn

Víða verður frekar hvasst og blautt í
dag en þó dregur úr vindi eftir því sem
líður á daginn. Hiti verður á bilinu
fjögur til tíu stig. Norðausturland ætti
að sleppa við rigningu að
mestu.Veðurhorfur á landinu til
miðnættis annað kvöld:Suðvestan 10-18
metrar á sekúndu og skúrir í dag, en að
mestu þurrt norðaustan- og austanlands.
Lægir smám saman, sunnan og suðvestan
5-13 síðdegis. Bætir í úrkomu, rigningu
eða skúrir í kvöld, þó síst á
Norðausturlandi. Hiti 4 til 10
stig.Sunnan 8-13 metrar á sekúndu
austast á morgun, annars hægari vindur.
Rigning eða slydda austantil, en skúrir
eða slydduél við vesturströndina.

Birt: 19.10.2026 06:54
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA