112/5RÚV - FRÉTTIR11:50
Ríkissaksóknari íhugar áfrýjun í
nauðgunarmáli

Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja dómi
Landsréttar frá í síðustu viku þar sem
karlmaður á fertugsaldri var sýknaður af
nauðgun, samkvæmt svari við fyrirspurn
fréttastofu.Maðurinn var sakfelldur og
dæmdur í fimm ára fangelsi þegar réttað
var yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur
í október í fyrra. Þá var hann dæmdur
til að greiða konunni 2,5 milljónir í
bætur.Landsréttur sneri dómnum við þar
sem tveir af þremur dómurum töldu
ósannað að maðurinn hefði brotið á
konunni, en fram kom að þau hafi komið
sér saman um harkalegt kynlíf. Hún hefði
einu sinni notað öryggisorð og maðurinn
brugðist við því.Samkvæmt ákæru hlaut
konan margs konar áverka eftir atvikið,
meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og
tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og
mjaðmagrind.Einn dómari skilaði
sératkvæði og vildi sakfella
manninn.Konan hefði samþykkt að kynlífið
mætti vera harkalegt en ekki samþykkt
hvaða ofbeldisfullu háttsemi sem er.
Hafið væri yfir vafa að maðurinn hefði
beitt konuna mun meira ofbeldi en hún
hefði samþykkt.Dómur Landsréttar vakti
hörð viðbrögð. Meðal annars sagði Guðný
S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður
Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu
ofbeldi, í samtali við fréttastofu að
dómurinn geri lítið úr
ofbeldi.Sérstaklega alvarleg séu þau
skilaboð sem dómurinn sendi þolendum
kynferðisofbeldis.,,Við vitum að fólk
getur frosið við ógnvekjandi aðstæður og
verið ófært um að mótmæla og þess vegna
finnst mér mjög varhugavert að verið sé
að nota það gegn brotaþola að hún hafi
ekki náð að segja öryggisorðið oftar en
einu sinni."

Birt: 19.10.2026 11:09
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA