112/6RÚV - FRÉTTIR11:50
Stinga Stellu í orlofi í samband við
tíðarandann

,,Við þá sem eru einhverjir
Stellu-conformistar: Hafið engar
áhyggjur. Þetta verður ekki
Nútímadanssýningin Stella," segir
Halldór Laxness Halldórsson, annar
höfundur leikgerðar Stellu í orlofi.,,Það
er spennandi að fá að setjast við
handrit móður sinnar og fá að bæta sínu
inn."Greint var frá því í dag að Stella
í orlofi verði sett á svið í
Borgarleikhúsinu á næsta leikári.40 ár
eru frá því að kvikmyndin ástsæla var
frumsýnd. Guðný Halldórsdóttir skrifaði
upprunalega handritið og Þórhildur
Þorleifsdóttir leikstýrði kvikmyndinni.
Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir
sýningunni og annast leikgerð hennar
ásamt Halldóri.Halldór er menntaður
leikhúsfræðingur. Hann segir sögu Stellu
í orlofi eiga vel við sviðið.,,Ég held að
við séum ekkert að fara að færa þetta í
tíma neitt. En það skiptir máli, hvort
sem þú ert að setja upp Sjálfstætt fólk
eða Stellu í orlofi, að stinga sögunni í
samband við tíðarandann og við
samfélagið sem er að fara að sjá hana,"
segir Halldór.,,Það er kannski stóra
verkefnið - hvernig við gerum það. En ég
vil kannski ekki gefa of mikið upp um
það á þessu stigi málsins.",,Kannski
getum við kallað þetta uppgjör Stellu í
orlofi",,Það sem gerir Stellu svo
sérstaka er að hún hefur alið upp
nokkrar kynslóðir einhvern veginn,"
segir Halldór. Kvikmyndin hafi verið til
á hverju einasta heimili eftir að henni
var dreift með pulsupökkum.,,Svo hafa
foreldrar sýnt börnunum sínum myndina.
Nú er kannski kynslóðin sem var alin upp
af Stellu í orlofi orðin fullorðin. Það
er þess vegna sem okkur finnst þetta
svona spennandi. Kannski getum við
kallað þetta uppgjör Stellu í orlofi og
þess samfélags sem við sjáum
þarna."Halldór skrifaði líka verkið
Atómstöðin - endurlit, ásamt Unu
Þorleifsdóttur. Verkið var sett upp í
Þjóðleikhúsinu árið 2019 og var bæði
aðlögun og eins konar rýni á
skáldsögunni frá 1948. Halldór er
afkomandi höfunda bæði Atómstöðvarinnar
og Stellu í orlofi, afa síns Halldórs
Laxness og móður sinnar Guðnýjar
Halldórsdóttur.Hóa í gamla gengið (en
samt ekki)Halldór fer fögrum orðum um
Brynhildi Guðjónsdóttur.,,Hún er mesti
meistarinn. Hún er bæði að skrifa með
mér, leikstýrir og er komin á fljúgandi
fullt með alls konar vinnu í leikmynd og
búningum. Svo er verið að nýta tónlist
Valgeirs Guðjónssonar sem okkur finnst
svo viðeigandi við þetta
tímabil."Valgeir samdi tónlist fyrir
kvikmyndina á sínum tíma.,,Valgeir á svo
marga hittara og hann átti stóra lagið í
Stellu, sem Diddú syngur. Það er smá
verið að hóa í gamla gengið en taka 2026
remix af þessu öllu."

Birt: 19.10.2026 10:47
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA