113/10RÚV - MENNING13:26
Bréfið var ekki frá sprengjuvörgunum

Menn sem útskrifuðust úr menntaskóla
vorið 1960 sendu nafnlaust bréf á
fjölmiðla þar sem þeir lýstu sprengingu
Hafmeyjunnar í Tjörninni sér á hendur. Í
síðasta þætti þáttaraðar Rásar 1 Hver
sprengdi hafmeyjuna? er rætt við konu
sem segir mennina hafa skrifað bréfið í
gríni. Þeir voru algjörlega ótengdir
sprengjuvörgunum, að hennar sögn.,,Þetta
var góður vinahópur á menntaskólaárunum.
Sumir höfðu beittari húmor en aðrir og
fengu þá flugu í höfuðið að skrifa og
senda þetta bréf og þykjast vera
sprengjumennirnir," segir konan, sem kýs
að vera nafnlaus.,,Þeir höfðu samt ekkert
vit á list hvað þá að þeir vissu
eitthvað um Nínu."Sú eina sem er á lífi
sem veit þettaHafmeyjan var sprengd af
skemmdarvargi eða -vörgum á nýársnótt
1960 eftir miklar deilur. Bréfið var
sent fáeinum dögum síðar, því lýst yfir
að ástæða skemmdarverksins væri
fagurfræðileg. Saga sprengingarinnar og
eftirmál hennar eru rakin í þáttunum
Hver sprengdi hafmeyjuna? og nýju ljósi
varpað á málið. Í kjölfarið hafði
heimildarmaðurinn samband við
umsjónarmann þáttanna, Höllu
Harðardóttur.Hluti áratuga-gamallrar
ráðgátu virðist nú leystur eftir að
vitni steig fram og upplýsti um ritara
nafnlauss bréfs sem sent var fjölmiðlum
í kjölfar sprengingar á Hafmeyju Nínu
Sæmundsson.,,Þar sem nú í dag er verið að
fjalla um þennan löngu liðna atburð og
ég hef haft gaman af að fylgjast með þá
rifjaðist þetta atvik upp og mig langaði
bara að sannleikurinn um bréfið fengi að
koma í ljós, sennilega er ég sú eina sem
er á lifi og veit þetta, segir konan.Hún
ítrekar að þeir sem skrifuðu bréfið
tengdust á engan hátt þeim sem sprengdu
styttuna.Konan eyddi áramótunum með
vinahópnum í húsi foreldra sinna, en
allir voru vinirnir á síðasta ári í
menntaskóla í Reykjavík. Þau fóru svo
uppáklædd á ball í Sjálfstæðishúsið og
dönsuðu alla nóttina.,,Þetta eru áramót
sem ég man alltaf, því ég var að trúlofa
mig. Og þarna var þessi hópur með okkur
í matarveislu heima hjá foreldrum mínum.
Og það var alls ekki haft vín um hönd á
þessum tíma en þetta var mjög náinn og
góður hópur."Glöð að leiða sannleikann í
ljós,,Þetta var bara galgopaháttur, og
spéfuglar í hópnum," segir hún aðspurð
um ástæðuna.,,Þetta var allt í gríni og
ég hef þagað yfir þessu allar götur
síðan."Ertu ánægð með að hafa sagt frá
þessu?,,Ég held það. Ég held að ég hafi
fengið hugboð um að ég ætti að gera
þetta þegar ég fór að hlusta á þessa
þætti. Afhverju ekki? Ég er sennilega sú
eina sem er á lífi sem veit þetta. Ég
held að ég geri listakonunni gott með
því að koma með þennan sannleika í
ljós."Þáttaröðin Hver sprengdi
hafmeyjuna er aðgengileg á Spilara RÚV
og hlaðvarpsveitum.

Birt: 17.10.2026 11:06
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA