113/12RÚV - MENNING13:26
Vakan er skrímsli sem ,,hefur
ófyrirsjáanleg áhrif á þá sem fyrir
henni verða"

Sjónvarpsþættirnir Vaka hafa slegið í
gegn í Svíþjóð á árinu. Íslenskum
sjónvarpsáhorfendum gefst brátt kostur á
að horfa á þættina á RÚV - sá fyrsti fer
í loftið annað kvöld.Vaka er dystópískur
vísindatryllir sem segir frá því þegar
faraldur banvæns svefnleysis breiðist
eins og eldur í sinu um Stokkhólm.,,Mig
hefur alltaf langað að skrifa svona það
sem mætti kalla dystópíska sögu með
hjarta og fannst spennandi að láta sögur
nokkurra persóna tvinna saman
heildarmynd af samfélagi sem riðar til
falls," segir Brynja Björk
Garðarsdóttir, höfundur þáttanna.Í
sjónvarpsþáttunum Vöku breiðist faraldur
banvæns svefnleysis eins og eldur í sinu
um Stokkhólm. Höfundur þáttanna segir
adráttarafl heimsendasagna vera mikið
vegna þess að þær séu oft afhjúpandi
fyrir samfélagið og mannlegt eðli.,,Í
Vöku hittum við fyrir nokkrar ólíkar
persónur sem bregðast við á mismunandi
hátt þegar heimurinn fer á hvolf og
söguþráðurinn fléttast síðan saman í
gegnum öll þessi sjónarhorn. Vakan er
síðan gott skrímsli þar sem hún hefur
ófyrirsjáanleg áhrif á þá sem fyrir
henni verða."Þættirnir hafa verið sýndir
víða um heim síðan í janúar á
streymisveitunni Prime Video. Brynja
segir þættina hafa fengið góðar
viðtökur, náð inn á topp tíu lista á
öllum mörkuðum og þeir héldu sig þar í
nærri tvo mánuði í Svíþjóð.,,Eitt af því
sem gefur heimsendasögum þetta mikla
aðdráttarafl er hvernig þær eru oft
svona svolítið afhjúpandi fyrir
samfélagið og mannlegt eðli og eins og
oft er sagt, þegar allt fer á hliðina þá
eiga manneskjur það til að sýna bæði
sínar bestu og verstu hliðar og það má
svo sannarlega heimfæra upp á
söguþráðinn í Vöku," segir Brynja Björk.

Birt: 17.10.2026 07:01
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA