Fréttir vikunnar: Jón Gnarr í opnu sambandi með Viðreisn Vikan var viðburðarík á fréttastofum landsins. Berglind Festival tók það helsta saman í fréttum vikunnar með Gísla Marteini í kvöld, eins og venja er á föstudögum.Hún snerti meðal annars á athyglisverðum viðtölum við körfuboltaþjálfara á landsbyggðinni sem virðast mismetnaðarfullir fyrir íþróttinni, brotthvarfi Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sem Ólafur Þ. Harðarson líkir við opið hjónaband og auðvitað veðrinu sem gekk yfir landið í vikunni.Talskona íslensku sumarkonunnar leit svo við í beinni innkomu til að ræða stöðu au pair stúlkna. Birt: 16.10.2026 22:33 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|