113/15RÚV - MENNING13:26
Alltaf eins, aldrei eins

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Það er
eins gott að vanda til verka þegar besta
hljómsveit í heimi gefur út nýja plötu.
Ég gat ekki haldið aftur af tárunum er
ég var að lýsa því hvaða merkingu hún
hefur fyrir mig í hlaðvarpi einu, já,
svo djúpt liggja þræðirnir í þessum
líkama og þessari sál. Þannig að
undirbúið ykkur fyrir rennireið.Platan
hefst á laginu ,,Lygar" og þar er af
riffum nóg, ,,hefðbundinn" Ham-massi sem
neglir þig upp við vegg. ,,Ég er hann"
viðheldur þessu upp að vissu marki,
melódískara þó og góður vitnisburður um
lagasmíðanáðargáfu Sigurjóns
Kjartanssonar. ,,Inni í höfði mér" er
hins vegar fullkomlega inni í nokkurs
konar alþýðuramma (já, ég sperrti upp
eyrun líka, lesandi góður). Kristjana
Stefánsdóttir opnar það með glæsisöng
áður en farið er í ,,hamferð" þar sem
Sigurjón syngur um hrossagauka og að
sólin skíni í heiði. En inni í höfðinu
deyi hann nú samt og Óttarr kemur inn
með söng um að í eðli lífsins sé að
reyna hvern mann. Ótrúlegt lag en þetta
er engin u-beygja samt. Þessi þráður
hefur alltaf verið í tónlist Ham,
stóreflis niður aldanna sem kallar fram
eitthvað fornt og mikilúðlegt. Hér er
þetta einfaldlega tosað aðeins meira
upp.Steinunn Eldflaug syngur ,,la la la"
í ,,Stubbur" en aftur er skipt í vel
smurt rokk á ,,Hellisheiði", vinkill Ham
á ,,Born To Be Wild" eiginlega. Tilraunir
spretta hins vegar upp á ,,Rashomon" hvar
heyra má ,,eðlilega" rödd Óttars og mér
heyrist að flestir meðlimir Ham leggi
þarna til rödd einnig. Og hér kemur kór,
aftur er það ,,la la la" en nú er eins og
við séum í stílfærðum færeyskum
hringdansi eða á skuggum bundnum
miðnæturfundi einhverra aldinna
höfðingja. Gotneskt, þungt, epískt,
Ham-legt.Endalok alls er ný
hljóðversplata rokkhljómsveitarinnar
Ham. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í
gripinn sem jafnframt er plata vikunnar
á Rás 2.,,Nótt finngálksins" býr yfir
ískrandi nýbylgjugítar á meðan ,,Ég ann"
býður upp á blandaðan kór yfir
skriðdrekariffum að hætti hússins.
Titillagið er næstsíðast, ógurlegur
andskoti, og ég heyrði það fyrst á
tónleikum sveitarinnar í Reykholti í
apríl. Drungalegt lag sem olli
hræðsluskoti í magann í kirkjunni en
Óttarr beitir hálfgildings nornaöskri
fyrir sig undir restina. En svo, til að
undirstrika öll þau stíllegu bessaleyfi
sem hér eru tekin, er endað á laginu
,,Lystigarðurinn". Kerskið lag, eiginlega
dálítið flippað þar sem endað er með
nett brjálæðislegu tralli. Orgelleikur
Úlfs Eldjárns kemur hér sterkur inn en
sannkölluð valmenni lögðu gjörva hönd á
plóg við plötugerðina en það var nafni
minn Guðjónsson sem stýrði upptökum sem
fram fóru í Sýrlandi og Langholtskirkju
í sumar.Ham sneri aftur 2011 með
plötunni Svik, harmur og dauði, hvar
haldið var í einkennandi hljóm um leið
og snúið var upp á hann. Verkið níðþungt
alveg, ég sekk bara niður í sætið þegar
ég hugsa um það. Á Söngvar um helvíti
mannanna losuðu menn um og draumur Ham
um að vera nýbylgjuhljómsveit fékk meðal
annars vængi (og tralli skotið inn í
,,Morðingjar").Endalok alls er verk
sveitar sem, þrátt fyrir gríðarlega
sterk höfundareinkenni alla tíð, neitar
að láta tjóðra sig við eitthvað eitt.
Ham er alltaf eins, aldrei eins. Reynsla
og innsæi þeirra eldri, hinna spöku,
tryggir líka ákveðið afdráttarleysi
varðandi það að gera nákvæmlega það sem
mönnum hugkvæmist. Að leika sér með
formið, þenja mörkin, vinna áfram með
það sem sveitin á nú þegar. Útkoman er
ákveðin mýkt (já!), visst zen, kímnigáfa
í unnvörpum, einkar heilbrigð forvitni
(hvar við græðum) og að sjálfsögðu
endalaust af hreinu og tæru rokki og
róli. Ég bið ekki um meira frá bestu
hljómsveit í heimi.Stjörnur: 5 / 5
Hvernig virkar stjörnugjöf Rásar 2? Fimm
stjörnur: Klassík. Hér er allt eins og
best verður á kosið. Platan setur mark
sitt á tónlistarsöguna til
framtíðar.Fjórar og hálf stjarna:
Lygilega góð en tíminn leiðir í ljós
hvort hún telst klassík. Fjórar
stjörnur: Framúrskarandi. Hún er
áhrifamikil og næstum því hvert einasta
lag er frábært. Hlustendur sem eru ekki
alltaf hrifnir af þessum flytjanda eða
tónlistarstefnu eiga eftir að kunna að
meta hana.Þrjár og hálf stjarna: Frábær.
Ef þetta er tónlistarstefna að þínu
skapi þá hugnast þér þessi plata. Ef þú
heldur upp á flytjandann áttu eftir að
elska hana.Þrjár stjörnur: Góð.
Flytjandinn var samur við sig og það
heppnaðist með ágætum.Tvær og hálf
stjarna: Meh. Annaðhvort reyndi
flytjandinn eitthvað nýtt sem gekk ekki
alveg upp eða hann var ekki upp á sitt
besta.Tvær stjörnur: Sæmileg. Jafnvel
þótt þú sért mikill aðdáandi þarftu
talsverða sjálfsblekkingu til að telja
þér trú um að þessi sé góð.Ein og hálf
stjarna: Láttu þessa eiga sig.Ein
stjarna: Léleg. Þú ættir eiginlega að
kynna þér hana, þó ekki nema bara til að
heyra hversu yfirgengilega slæm hún er.

Birt: 16.10.2026 16:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA