113/17RÚV - MENNING13:26
Sækir í smiðju íslensks uppfinningamanns
sem bjó í skipsflaki

Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt
og virðist vera forvitinn um allt en
kannski sérstaklega allt sem tengist
hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið
hans sameinast í hljóðfærum sem hann
hefur dundað sér við að smíða frá grunni
upp á síðkastið, rafpípuorgeli og
rafhörpu.Víðsjá heimsótti Halldór á
dögunum og fyrsta hljóðið sem mætti
Höllu Harðardóttur dagskrárgerðarmanni
var hljóðið í pumpu
pípuorgelsins.,,Pumpan er mjög hávær. Hún
var keypt í Rúmfatalagernum og var fyrst
vindsængurpumpa. Svo er ég búinn að vera
að reyna að hljóðeinangra hana, ég er
búinn að smíða risakassa utan um hana og
pakka henni inn í teppi. Það heyrist enn
þá alveg ógeðslega mikið í henni," segir
Halldór.Tónsmíðar og grúsk kveikjan að
hljóðfærasmíðinniHann hefur lengi ætlað
að smíða sitt eigið pípuorgel, allt frá
því að hann var fenginn til að semja
tónverk fyrir orgel Hallgrímskirkju
2019.,,Það má eiginlega segja að það hafi
dregið svolítið stóran dilk á eftir sér
og ég hafi svona allt að því fengið
þetta á heilann."Fyrir nokkrum árum var
Halldór svo fenginn til að stýra sýningu
um íslensk hljóðfæri á Norrænum
músíkdögum. Við undirbúninginn komst
hann í samband við Bjarka Sveinbjörnsson
á Tónlistarsafninu sem benti honum á
ansi forvitnileg hljóðfæri sem Magnús
Karvel Guðmundsson fann upp, strokhörpu
og kliðhörpu.,,Hann var svo djúpt sokkinn
í þessi sköpunarverk sín að hann var við
það að svelta. Hann var fátækur og eyddi
öllum sínum kröftum í þessar
uppfinningar og tókst að lokum að búa
til þessi tvö hljóðfæri. Hann var ekki
mikið fyrir að trana sér fram og var
hlédrægur," segir Halldór um þennan
merka uppfinningamann sem lét sér fleira
en tónlist varða.,,Fáránlegt en ótrúlega
fallegt á sama tíma",,En hann fann líka
upp framleiðslulínu fyrir harðfisk og
smíðaði öll tækin fyrir
harðfiskvinnsluna Hjall. Svo var hann
líka með á teikniborðinu fyrstu
botnvörpuna, mögulega áður en hún var
fundin upp," segir Halldór sem líkir
Magnúsi við fyrirrennara fyrirtækisins
Marel í
fiskvinnslumálum.Uppfinningamaðurinn
lifði þó alla tíð við kröpp kjör. ,,Það
er einmitt svona kannski sorglegast í
þessu að hann var svo gáfaður og
sniðugur en fékk ekki að njóta þess,"
segir Halldór.,,Mér fannst eiginlega bara
magnað að á millistríðsárunum hafi verið
maður hérna á Íslandi sem um tíma bjó
ekki einu sinni í húsi, hann bjó í
skipsflaki, að hann hafi verið að reyna
að búa til ný hljóðfæri. Mér finnst það
eiginlega bara fáránlegt en ótrúlega
fallegt á sama tíma."Tónlistarmaðurinn
Halldór Eldjárn smíðaði nýverið
rafpípuorgel og rafhörpu. Innblásturinn
að hörpusmíðinni kom frá Magnúsi K.
Guðnasyni, uppfinningamanni sem fæddist
á 19. öld og lét sig margt fleira en
tónlist varða.Halla Harðardóttir tók
Halldór Eldjárn tali í Víðsjá. Þau ræddu
um hljóðfæri sem Halldór hefur smíðað og
uppfinningamanninn Magnús Karvel
Guðmundsson svo fátt eitt sé nefnt. Hægt
er að hlusta á viðtalið í heild sinni í
spilaranum hér fyrir ofan.

Birt: 16.10.2026 14:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA