113/20RÚV - MENNING13:26
Nauðsynlegt að geta hlegið að listinni

Myndlistarkennarinn og listamaðurinn
Pétur Guðmundsson kenndi myndlist í
grunnskóla og listaskóla Rögnvaldar
Ólafssonar á Ísafirði. Eftir hann liggja
býsnin öll af málverkum, teikningum,
vísum og lágmyndum. Hann segir
nauðsynlegt að hafa húmor og geta hlegið
að listinni.,,Það er gott að setjast
niður og semja vísur og limrur með
myndskreytingum." Pétur segist ekkert
frekar velta hlutunum fyrir sér áður en
hann byrjar að teikna, klippa, líma og
mála. ,,Ég geri bara það sem mér dettur í
hug í hvert sinn."Pétur er afkastamikill
og sýningar hans eru orðnar ríflega
sextíu talsins. ,,Stundum fæ ég of margar
hugmyndir, þær skortir ekki. Það kemur
alltaf eitthvað nýtt."Pétri hefur dottið
í hug að skreyta húsgafl á heimili
fjölskyldunnar. ,,Kannski kemur það einn
daginn ef eiginkonan sættist á það."

Birt: 16.10.2026 07:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA