113/21RÚV - MENNING13:26
Lagerinn að tæmast og von á hraðsendingu
í næstu viku

Lager fataverslunarinnar Skims í
Kringlunni fer að klárast og þegar er
búið að leggja inn hraðpöntun á næstu
sendingu til landsins. Verslunin var
opnuð í Kringlunni í dag.Ingibjörg
Kristófersdóttir, annar eigenda
fyrirtækisins Föt og skór ehf. sem
stendur að opnuninni segir daginn hafa
verið ,,algjöra sprengju.",,Bara alveg frá
því að við opnuðum klukkan tólf og við
erum uppseld í alveg rosalega mörgum
,,itemum" og ákveðnum stærðum. Þannig ég
stökk heim klukkutíma eftir opnun til
þess að gera hraðpöntun."Von er á
hraðsendingum til landsins á mánudag og
þriðjudag.Bómullarvörurnar
sérstaðanSKIMS var stofnað af Kim
Kardashian, raunveruleikastjörnu og
athafnakonu. Það var ekki auðvelt að því
að fá merkið til landsins, en það gekk
að lokum og er merkið komið til að vera
að sögn Ingibjargar. Skims er hvað
vinsælast fyrir bómullarvörur sínar og
einmitt þær ruku út í dag.,,Hver er
vinsælasta varan? Nærfötin eru rosalega
vinsæl, þessi sem eiga að passa á alla
og öll bara þessi bómullarvara, langerma
bolir, bolir og náttföt. Það er búið að
vera mikil hreyfing á þessu í dag."

Birt: 15.10.2026 20:34
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA