113/3RÚV - MENNING13:25
Fólk sem ,,hefði afskaplega gott af því
að Halla Tómasdóttir kæmi inn í stofuna
til þess"

Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson er
fjölskyldusaga um föður, móður og þrjú
börn þeirra. 20 ár eru liðin frá andláti
elsta barnsins, Danna, en hann á alveg
jafn stóran þátt í að segja söguna eins
og systkini hans og foreldrar.,,Þetta er
mjög raunsæ saga. En Danni, það er svona
önnur vídd sem að ég var hrifin af,"
segir Kolbrún Bergþórsdóttir um
bókina.,,Þetta er fólk sem nær ekki
tengslum, þetta er algjörlega
tengslalaust fólk. Það hefði afskaplega
gott af því að Halla Tómasdóttir kæmi
inn í stofuna til þess og segði því
hvernig ætti að tala almennilega saman,"
segir Kolbrún en sorgin vegna fráfalls
Danna hefur sundrað fjölskyldunni í stað
þess að sameina hana. ,,En einhvern
veginn hef ég á tilfinningunni að
jafnvel þó að Danni hefði ekki farið þá
væru þau samt í vondum málum, af því að
þeim er ómögulegt að mynda
tengsl."Vantar herslumuninnKolbrún segir
að hún hefði sjálf sem lesandi viljað ná
sterkari tengslum við persónur
bókarinnar. Annars er margt vel gert í
bókinni og hún er áhugaverð að mati
Kolbrúnar. ,,Mér fannst kannski vanta
herslumuninn en mér finnst hún góð."Einn
kafli var í sérstöku uppáhaldi hjá
Kolbrúnu, þegar móðirin hellir sér yfir
erlenda afgreiðslustúlku í stórmarkaði.
,,Mér leið eins og ég væri í röðinni og
væri að horfa á þetta og það kemur þessi
óþægindatilfinning.",,Greinilega
þaulhugsað"Ingibjörg Iða Auðunardóttir
var einnig hrifin af bókinni en líkt og
Kolbrún segir hún að það vanti
herslumuninn. Hún hefði til dæmis viljað
kynnast persónu Danna betur.,,Hún er
áhugaverð og þetta er metnaðarfullt,"
segir Ingibjörg sem var hrifin af því
hvernig frásagnirnar fléttast saman.
,,Þetta er greinilega þaulhugsað og margt
í þessu sem er mjög áhugavert og góðar
setningar þegar talað er um missi og
tilfinninguna að vera í fjölskyldu sem
er einhvern veginn ekki
fjölskylda."Gagnrýnendur Kiljunnar voru
sammála um að bókin Ókunnugt fólk eftir
Björn Halldórsson væri vel unnin en að
hana vantaði herslumuninn.Gagnrýnendur
Kiljunnar fjölluðu um bókina Ókunnugt
fólk eftir Björn Halldórsson í síðasta
þætti. Hægt er að horfa á þáttinn í
spilaranum hér fyrir ofan.

Birt: 18.10.2026 14:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA