113/4RÚV - MENNING13:25
Digger er nýstárleg, klikkuð og
skylduáhorf

Það voru Brynja Hjálmsdóttir og
Hugleikur Dagsson sem rýndu í myndina í
Miðstöðinni og þau voru bæði ákaflega
hrifin af þessari umdeildu kvikmynd sem
hefur átt erfitt uppdráttar í
kvikmyndahúsum um allan heim, tapið á
henni er gífurlegt og gagnrýnendur
skiptast í tvær fylkingar.,,Myndin er
umdeild, hér eru teknir sénsar og það
leggst greinilega misvel í fólk en mikið
sem mér finnst kærkomið þegar sénsarnir
eru teknir á stórum skala," sagði Brynja
um kvikmyndina og Hugleikur vonar að hún
muni sópa til sín verðlaunum. ,,Ég vona
að verðlaunin verði örlátari við þessa
mynd en miðakaupendur," segir hann.Bæði
voru þau sammála um að myndin væri
skylduáhorf.Þú getur séð áhugaverðar
umræður um kvikmyndina Digger í
spilaranum hér að ofan.Miðstöðin er á
dagskrá RÚV öll fimmtudagskvöld kl.
20.15.

Birt: 18.10.2026 13:01
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA