113/5RÚV - MENNING13:25
Fertug Stella í orlofi á leið á stóra
svið Borgarleikhússins

Ein vinsælasta gamanmynd íslenskrar
kvikmyndasögu, Stella í orlofi, verður
sviðsett á stóra sviði Borgarleikhússins
á næsta leikári, í leikstjórn Brynhildar
Guðjónsdóttur.Brynhildur annast einnig
leikgerð sýningarinnar ásamt Halldóri
Laxness Halldórssyni. Sýningin verður
byggð á samnefndu kvikmyndahandriti
Guðnýjar Halldórsdóttur, móður Halldórs,
með tónlist eftir Valgeir Guðjónsson.40
ár eru síðan Stella í orlofi var
frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum, 18.
október 1986. Stór hluti þjóðarinnar sá
myndina í bíó á sínum tíma en vinsældir
hennar eru ekki síst tilkomnar vegna
þess að henni var á tímabili dreift með
pylsupökkum.Edda Björgvinsdóttir fór
eftirminnilega með hlutverk Stellu Löve,
lífsglöðu húsmóðurinnar sem tekur til
sinna ráða þegar Georg, eiginmaður
hennar, lendir á spítala og kemst ekki í
veiðiferð sem stóð til með erlendum
viðskiptavini.Stella ákveður að fara í
stað Georgs og hefst þá óborganleg
atburðarás sem öll er byggð á
misskilningi. Við sögu kemur danskt
viðhald Georgs, Lionsklúbburinn Kiddi,
drykkfelldi Svíinn Salomon, flugmenn á
frívakt, fljúgandi grill og
jeppadekk.Auk Eddu fóru þeir Gestur
Einar Jónsson og Þórhalldur Sigurðsson,
Laddi, á kostum sem Georg og Salomon. Á
næstu vikum verður greint frá því hver
fara með aðalhlutverkin í
Borgarleikhúsinu.,,Stella í orlofi er
fullkomin blanda af galsa og trega,
sameign okkar allra og hápunktur
tímabils þegar bjór var bannaður og
allir drukku sterkt, leiðtogafundur
stórvelda var haldinn í Höfða, Hófí var
fallegust, Jón Páll var sterkastur,
Reynir Pétur labbaði í kringum landið og
allir fengu köku í 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar. Og hugsið ykkur, við
lifðum þetta af!" er haft eftir
Brynhildi Guðjónsdóttur í tilkynningu
Borgarleikhússins.,,Það verður sannarlega
áskorun að koma hinu frábæra
kvikmyndahandriti Guðnýjar
Halldórsdóttur á svið, fanga það besta
úr kvikmyndinni sem heillaði þjóðina og
kitlaði hláturtaugar svo um munaði -
eitursnjöll flétta, frábærlega leikstýrt
af Þórhildi Þorleifsdóttur, snilldarlega
leikin af óaðfinnanlegu kasti, hver
rammi myndrænt listaverk, bilaðslega
flott litapalletta og tónlist Valgeirs
Guðjónssonar sem fullkomnar verkið."

Birt: 18.10.2026 08:07
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA