,,Mér hefur alltaf liðið eins og þetta sé mín leið í lífinu" ,,Já, það hefur alltaf verið það. Frá því ég man eftir mér. Auðvitað bara í hverfinu fyrst að semja, skrifa og pæla," segir tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson aðspurður hvort tónlist hafi alltaf verið stór hluti af lífi hans. Kristmundur Axel er viðmælandi Viktoríu Hermannsdóttur í fyrsta þætti í þáttaröðinni Svona er lífið sem hefur göngu sína í kvöld, sunnudag, klukkan 20:15. Í þáttaröðinni kynnist Viktoría alls konar fólki í íslensku samfélagi og fær að heyra áhugaverðar sögur. Einlægur og persónulegurKristmundur er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins um þessa þessar mundir. Hann byrjaði ungur í tónlist, hvarf úr senunni í nokkur ár en sneri svo til baka tvíefldur. Undanfarin ár hefur hann sent frá sér hvern stórsmellinn á fætur öðrum sem tróna á toppi vinsældalistanna. Hann er einlægur í textasmíð sinni og óhræddur við að yrkja um persónulega hluti úr sinni stóru og miklu fjölskyldusögu. ,,Svo hef ég auðvitað alltaf verið að syngja og skapa. Mér hefur alltaf liðið eins og þetta sé mín leið í lífinu. Hefur komið mér út úr alls konar klandri. Hefur komið mér út úr einhverjum svona sorgartilfinningum, þetta er útrásin mín," segir Kristmundur. Hann segist njóta sín best þegar hann er að koma fram. Kristmundur Axel segist tónlistina alltaf hafa verið stóran hluta af sínu lífi. Hann er óhræddur að tala og yrkja um sína miklu fjölskyldusögu. Við kynnumst Kristmundi í fyrsta þætti af Svona er lífið.,,Ég pæli i öllum smáatriðum. Breytist bara upp á sviði hreinlega. Þar gerist eitthvað. Verð eitthvað skrímsli þar. Það er rosalega gaman. Það er það sem ég hlakka alltaf mest til. Það er að flytja lögin."Fólk tengir við sögurnarKristmundur hefur verið óhræddur við að yrkja um sína miklu fjölskyldusögu - nokkuð sem hefur komið honum á óvart hversu margir tengja við. Lagið Kominn heim hefur slegið í gegn og er líklega vinsælasta lag ársins. Þar talar hann á opinskáan hátt um brot úr sögu fjölskyldunnar.Kristmundur Axel segist tónlistina alltaf hafa verið stóran hluta af sínu lífi. Hann er óhræddur að tala og yrkja um sína miklu fjölskyldusögu. Við kynnumst Kristmundi í fyrsta þætti af Svona er lífið.,,Þetta er bara mjög stór partur af manni. Ég kom bara upp syngjandi um þetta einhvernveginn, inn í þennan bransa, inn í þessa senu," segir hann en viðurkennir þó að hann sé ekkert alltaf æstur í að fara í viðtöl að tala um þetta. ,,En þetta er bara partur af manni, þetta er bara mjög eðlilegt." Oft hefur líka fólk með sambærilega reynslu samband við hann. ,,Það er oft bara toppurinn við þetta og kannski svona bensín. Það rosa mikið af fólki sem tengir við margt af því sem ég geri og syng um - það kom mér alveg á óvart sko. Það er bara eins og með Kominn heim. Það tengja geðveikt margir eitthvað. Ég meina komdu til baka. Tengja geðveikt margir - þetta er kannski ekki alltaf þessi beina tenging en kannski er ég að gefa þeim einhverja tengingu í einhverju orði þess vegna. Svo eru sumir sem tengja alveg og betur en það. Ég hugsa að það sem ég er að gera. Sem er bara að segja sögur, það er bara eitthvað sem fólk tengir kannski meira við heldur en einhver partýlög eða eitthvað þannig, þó þó séu líka góð og mikilvæg."Svona er lífið er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 20.15. Þar fylgjum við Kristmundi eftir, kynnumst lífi hans og störfum og kíkjum meðal annars í heimsókn til móður Kristmundar.Kristmundur Axel segist tónlistina alltaf hafa verið stóran hluta af sínu lífi. Hann er óhræddur að tala og yrkja um sína miklu fjölskyldusögu. Við kynnumst Kristmundi í fyrsta þætti af Svona er lífið. Birt: 18.10.2026 07:30 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|