Baka til góðs í heilan sólarhring Á hádegi hófst sólarhringslangt bakstursmaraþon í Reykjavík til styrktar Minningar- og styrktarsjóðnum Arnarins undir merkjum Bökum til góðs.Hjónin Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Guðmundur Ragnar Einarsson, sem halda úti kökublogginu Blaka.is, standa á bak við baksturinn. Það hafa þau gert tvisvar áður. Þá buðu hjónin fólki heim til sín en í þetta sinn er bakstursmaraþonið haldið í sýningarsal HTH og Ormsson í Lágmúla.Lilja Katrín stóð í ströngu við vöfflubakstur þegar fréttastofa leit við. Hún nýtur aðstoðar tveggja dætra sinna, Amelíu Bjartar og Önnu Alexíu sem er þó ekki nema ellefu ára gömul. Birt: 17.10.2026 16:37 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|