113/9RÚV - MENNING13:26
,,Ég veit ekki hversu oft ég hágrét yfir
lestri þessarar bókar"

Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur hefur
vakið mikla athygli frá því að hún kom
út fyrir skemmstu. Þetta er persónulegt
verk sem fjallar um þrána eftir að
eignast barn. Ingibjörg Iða
Auðunardóttir, einn af gagnrýnendum
Kiljunnar, segir að lesendum sé hleypt
alveg inn að kviku söguhöfundar.Hún
segir að ekki séu allir hrifnir af hve
mikið hefur farið fyrir
skáldævisagnalegum skrifum (e.
autofiction) á síðustu misserum og að
hún geti sumpart tekið undir það þegar
illa er að verki staðið.,,En þegar þetta
er svona vel gert þá er full ástæða til
að fagna þessari list rithöfunda að
leyfa okkur að sjá inn í þau,
bókstaflega. Þetta er fyrir forvitið
fólk, fyrir fólk sem vill vita hvernig
það er að vera í þessum aðstæðum. Þetta
er mögnuð lesning. Ég hef rætt þessa bók
við marga í kringum mig og við erum öll
sammála um það, nú er ég ekki að telja
Kollu með, en okkur líður eins og við
höfum lent í þessu sjálfar," segir
Ingibjörg.,,Ég veit ekki hversu oft ég
hágrét yfir lestri þessarar bókar og ég
hef ekki grátið yfir lestri Kilju-bókar
áður. Mér fannst þetta brilljant
bók."Eins og að stelast í dagbókKolbrún
Bergþórsdóttir segir einlægnina í
bókinni gera það að verkum að hún hittir
mann í hjartastað. Henni hafi liðið eins
og hún væri að stelast til að lesa
dagbók.,,Og varðandi grát þá bara skora
ég á hvern einasta lesanda að lesa þetta
og koma að lokakaflanum og fella ekki
tár. Hann er algjörlega magnaður," segir
Kolbrún.Gagnrýnendur Kiljunnar segja
bókina Varkár eftir Margréti
Bjarnadóttur hitta lesendur í hjartastað
og að söguhöfundur hleypi lesendum alveg
inn að kviku.Gagnrýnendur Kiljunnar
fjölluðu um bókina Varkár fólk eftir
Margréti Bjarnadóttur í síðasta þætti.
Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum
hér fyrir ofan.

Birt: 17.10.2026 14:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA