114/10RÚV - ÍÞRÓTTIR13:29
Jón Þórarinn í ham í öruggum sigri FH á
Fram

Jón Þórarinn Þorsteinsson var í ham í
dag.Mummi LúFH-ingar voru ekki í
vandræðum með Fram í efstu deild karla í
handbolta í dag. Þeir unnu öruggan 28-36
sigur og stungu af í seinni hálfleik.Í
hálfleik leiddu Hafnfirðingar 16-17 en
munurinn var orðinn tíu mörk, 25-35,
þegar skammt var eftir.Jón Þórarinn
Þorsteinsson fagnaði sæti í landsliðinu
með 40% markvörslu og 18 vörðum
skotum.Ómar Darri Sigurgeirsson var allt
í öllu í sóknarleik FH og var með 11
mörk auk sex stoðsendinga.Hjá Fram voru
þeir Haukur Ingi Hauksson og Marel
Baldvinsson markahæstir með sex mörk
hvor.FH er í þriðja sæti með níu stig en
Fram er í 10. sæti með fjögur.

Birt: 17.10.2026 18:13
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA