Eyjakonur með flautumark og upp í 2. sætið Andrea Jacobsen var með þrjú mörk í dag.Mummi LúÍBV vann Fram í Vestmannaeyjum í dag í efstu deild kvenna í handbolta. Leiknum lauk með flautumarki, 29-28. Sandra Erlingsdóttir skoraði úr vítakasti aðeins nokkrum sekúndum fyrir leikslok.ÍBV hefur verið á mikilli siglingu síðustu vikur og er nú komið í 2. sæti með tíu stig. Framarar eru í því þriðja með átta stig.Sóldís Rós Ragnarsdóttir leiddi Fram með ellefu mörk og fimm stoðsendingar. Sandra Erlingsdóttir var markahæst hjá ÍBV með tíu mörk.Valur vann Gróttu, 26-21, og Haukar eru sem fyrr í efsta sæti eftir 33-28 sigur gegn ÍR. KA/Þór vann Stjörnuna, 32-28. Birt: 17.10.2026 18:03 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|