Þór síðasta liðið í 8-liða úrslit -- voru í brasi með varapeyjana Síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta fór fram í dag. Þórsarar unnu 30-27 sigur gegn ÍBV 2 í Vestmannaeyjum.Varaliðsmenn ÍBV voru sprækir í dag og var jafnt í hálfleik, 14-14. Eyjamenn voru sprækari lengst af í fyrri hálfleik og náðu oft eins og tveggja marka forskoti. Að lokum sigldu Þórsarar, sem leika í efstu deild, sigrinum heim. Þar taldi formið mikið.Agnar Smári Jónsson er hættur í handbolta en reimdi á sig skóna í dag og skoraði tólf mörk fyrir Eyjamenn. Ísak Rafnsson, Theodór Sigurbjörnsson, Garðar Benedikt Sigurjónsson, Sigurbergur Sveinsson og fleiri kempur léku með ÍBV í leiknum.Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með sex.Þetta eru liðin í 8-liða úrslitumGróttaValurFHVíkingurÍBVHaukarAf tureldingÞórEkki er búið að draga. Birt: 17.10.2026 17:49 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|