114/15RÚV - ÍÞRÓTTIR13:30
Þórsarar komnir úr fallsæti fyrir
lokaumferðina

Þórsarar eru komnir upp úr fallsæti
fyrir lokaumferð Bestu deildar karla í
fótbolta. Þeir fara upp í 10. sæti og
erkifjendur þeirra í KA fara niður í
fallsæti, það ellefta. Þór er með 27
stig og KA 26 stig.Þór vann Stjörnuna
3-1 en skömmu áður hafði KA tapað 1-4
gegn Val.Þór er með -31 í markatölu og
KA með -14. KA er því með 17 marka
forskot í markatölubaráttunni.KA mætir
ÍBV heima 24. október og Þór sækir FH
heim á sama tíma.Þórsarar eru því með
eins stigs forskot fyrir lokadag
fallbaráttunnar. Ljóst er að eitt
Akureyrarlið mun fylgja ÍBV niður, sem
eru nú þegar fallnir.Gangur
leiksinsÖrvar Eggertsson kom Stjörnunni
yfir snemma leiks en hann skoraði af
stuttu færi eftir aðeins þriggja mínútna
leik. Ásbjörn Líndal Arnarsson jafnaði
metin úr aukaspyrnu á 11. mínútu.Sverrir
Páll Ingason kom Þórsurum yfir með
frábæru skoti fyrir utan teig í
samskeytin fjær. Þorri Ingólfsson
skoraði svo þriðja markið á 58. mínútu
er hann kláraði vel í teignum.

Birt: 17.10.2026 16:08
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA