114/17RÚV - ÍÞRÓTTIR13:30
KR tryggði sér annað sætið með marki á
lokamínútunni

KR tryggði sér endanlega annað sæti í
Bestu deild karla í fótbolta í dag.
Vesturbæingar unnu 2-3 sigur gegn
Keflavík suður með sjó í
dag.Keflvíkingar enda í 6. sæti sem
nýliðar, en nú er ljóst að þeir geta
ekki náð ÍA sem er í 5. sæti.KR komst
yfir snemma leiks er Galdur Guðmundsson
skoraði á 8. mínútu. Ástbjörn Þórðarson
tvöfaldaði forskotið eftir undirbúning
Galdurs á 29. mínútu.Staðan var 0-2 í
hálfleik en heimamenn lögðu ekki árar í
bát. Þeir jöfnuðu með tveimur mörkum á
skömmum kafla. Stefan Alexander Ljubicic
minnkaði muninn á 49. mínútu og Dagur
Ingi Valsson jafnaði metin tveimur
mínútum síðar.Gabríel Hrannar Eyjólfsson
skoraði sigurmarkið á 89. mínútu eftir
undirbúning Arnórs Ingva Traustasonar.KR
er nú með 53 stig í 2. sæti þegar einn
leikur er eftir. Fram er í 3. sæti með
46 og mætir ÍA á mánudagskvöld.Hvað
þýðir 2. sætið?Munurinn á 2. og 3. sæti
er að KR situr hjá í eina umferð í
Sambandsdeild Evrópu á næsta ári en Fram
fer í fyrstu umferð. Vesturbæingar fá
hins vegar verðlaunafé fyrir fyrstu
umferð.

Birt: 17.10.2026 14:16
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA