Ísland minnsta mögulega mun frá verðlaunasæti og kærði Kvennalið Íslands varð í 4. sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum. Þetta er í fyrsta sinn í 22 ár sem liðið kemst ekki á verðlaunapall. Ísland var minnsta mögulega mun frá verðlaunasæti og kærði niðurstöðuna, en endaði á að fjarlægjast þriðja sætið.Spennan var afar mikil fyrir lokaæfinguna og þurfti Ísland 18 stig til að ná gulli og 16,9 stig til að ná bronsi. Aðeins 0,5 munaði á lokaæfingu á þriðja sætinu og því fjórða.Þjálfarateymið kærði dómgæsluna þar sem talið var að dómararnir hefðu misst af einhverju.Eftir að dómararnir fóru betur yfir æfinguna var erfiðleikastigið lækkað niður úr 7,5 í 7,4.Svíþjóð varð í fyrsta sæti, Danmörk í öðru og Stóra-Bretland í þriðja sæti.Stig ÍslandsTrampólín - 17,200Gólf - 17,800Dýna - 16,650Svona enduðu stiginSvíþjóð - 54,150 stigDanmörk - 53,000 stigStóra-Bretland - 51,900 stigÍsland - 51,650 stigNoregur - 51,650 stigFinnland - 47,550 stigKvennaliðið var með næstbestu einkunnina eftir undanúrslit, aðeins 0,300 stigum á eftir Svíþjóð sem var efst. Liðið er yngra en oft áður og því ljóst að mikilvæg reynsla fékkst á mótinu.Blandaða liðið einnig í 4. sætiBlandaða lið Íslands varð einnig í 4. sæti með 52,750 stig.Svíþjóð tók þar einnig gullið, Stóra-Bretland tók silfur og Danmörk brons. Birt: 17.10.2026 14:03 Heimild: RÚV Opna frumheimild < Aftur í fyrirsagnir
|