114/19RÚV - ÍÞRÓTTIR13:29
Ágúst Ingi og Dagur Kári klárir í
slaginn á HM

Ágúst Ingi og Dagur Kári keppa klukkan
14:00 í undankeppni karla í
dag.,,Tilfinningin var virkilega góð.
Þetta er augljóslega búinn að vera góður
undirbúningur hjá okkur og við sjáum það
í dag. Það er frábært að taka eina svona
góða æfingakeyrslu fyrir laugardaginn.
Mér líður ótrúlega vel. Markmiðið er að
hafa gaman og sjá hvar maður stendur
svona á heimsvettvangi," sagði Ágúst
Ingi er hann ræddi við fulltrúa
Fimleikasambandsins.,,Að fá að æfa í
þessum sal og með nýjum áhöldum. Að
prófa sig áfram fyrir mótið. Sjá hvernig
manni líður. Það er svona það helsta sem
ég myndi taka frá þessu. Mér leið vel.
Ég held ég sé tilbúinn. Ég held við séum
báðir tilbúnir," bætti Dagur Kári
við.Sýnt verður frá úrslitum á RÚV
dagana 20. til 25. október.

Birt: 17.10.2026 08:00
Heimild: RÚV
Opna frumheimild

< Aftur í fyrirsagnir
101 FRÉTTIR160 VEÐUR300 ÍÞRÓTTIR400 SAMGÖNGUR
100 FORSÍÐA   555 A-Ö   566 STAÐA